Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 109
109
Hvergi haldið dagblað á neinum bæ fyrir norðan Geirólfsgnúp
nema á Bjarnarnesi, Þjóðólfur, bókmenntafélagsbækur í Höfn,
Andvari í Smiðjuvík.
30. ágúst. Alltaf rigning en veðurhæðin minni, þoka niður í sjó.
Sker hér fyrir utan en ekkert varp í því í görðum fellur yfir það.
– Ísinn lá hér til í 14. viku við Strandir. Hallbera319 var á 14. ári á
Kirkjubóli og þá braust fram jökullinn og var að því allt sumarið
og ók garði á undan sér (brestir miklir), hún er nú 64 ára. Fýla
fannst úr honum og ósinn var þá ófær allt sumarið. Önnur kona
var fyrir 31 ári320 í Reykjarfirði og segir að þá hafi naumlega
verið meir en átta til tíu faðmar frá jökulrönd að jökulgarði. Um
aldamót var að brjóta af kirkjugarð inn á Kirkjubóli og kisturnar
að fljóta niður ósinn.
Fórum frá Bolungarvík kl. 12½ fyrir Ófæruna. Illviðri sífellt en
þó hægra að fara vegna þess fjara var nokkur. Komum að Furufirði
til Hallberu321 er þar býr. Fengum fylgd yfir heiðina – alltaf kolsvört
þoka og stórrigning, sá eigi ögn frá sér alla leið. Ófærð mikil í
efstu sköflum á heiðinni svo hestar brutust um og varð að hjálpa
þeim. Á Reykjahálsinum322 mættum við Benedikt frá Reykjarfirði
sem kom af grasafjalli í rigningunni með sína blöðruna (lúðu-
maga) á hverri öxl fulla af grösum. Sömu ókjörin stanslaust alla
leið. Lúðu magar almennt brúkaðir utan um fiður.
31. ágúst. Alltaf rigning um nóttina, stytt upp þegar við komum
á fætur en moldþoka niður að láglendi svo ekkert sást og
svo suddarigning. Benedikt bóndi hér hefir tekið eftir því að
meðan hann hefir verið hér í um 20 ár hefir jökullinn í
Þaralátursfirði dregið sig töluvert, nokkur hundruð faðma, til
baka. Rekaviðarkubba fékk eg hér. – Mislingasumarið323 fengust
inn af útheyi á Dröngum fjórar sátur.
319 Hér kemur aðeins ein til greina: Hallbera Guðmundsdóttir. Hún var hús-
mannskona í Reykj arfirði 1843–1845 og húsfreyja í Furufirði frá því fyrir 1850 til
dánardægurs 1893. (Lýður Björnsson (1992), bls. 84 og 93). Hún fæddist 1824 og
jökullinn þá hlaupið fram um 1837. Þorvaldur segir hana vera 64 ára en það
stenst ekki. Hún hefur verið 62 ára ef fæðingarárið er rétt.
320 Það hefur verið um 1855.
321 Hallbera Guðmundsdóttir.
322 Reykjarfjarðarháls.
323 Það var sumarið 1882.