Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 111

Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 111
111 Seinna sá til sólar og varð allgott veður. – Halli í fjallinu fyrir ofan Meyjar nesið glöggur ca. 4° til suðausturs. – Hlaða hér með líku lagi og á Reykhólum, fjárhús við hana. – Hvergi haldið blað á Ströndum nema í Ófeigsfirði og í Bjarnarnesi. – Suðurendi Drangajökuls frá Drangahálsi N87°V. Um kl. 12 fór eg frá Dröngum. Jón Pétursson328 þaðan varð samferða, veðrið fór batnandi og varð heiðríkja og sólskin. Vondur vegur, klif og klappir, út með þangað til farið er upp í hálsinn. Af hálsinum útsjón yfir jökulinn sem liggur eins og mjallahvít fannbunga á heiðunum. Jökullinn nær ei mjög langt suður fyrir Drangaháls og sáum við suðursporðinn. Þar norður af smá-atlíðandi jökulbunga og sýnist hún vera einna hæst á jöklinum og hallar norður að Hrollaugsborg en þá hækkar aftur og kemur minni bunga að sjá, nefnilega Hljóðabunga og klettaborg í henni neðarlega lík Hrollaugsborg. Hverfur þessi bunga héðan að sjá undir Miðmundahorn uppi hjá Fossadalsheiði. Gekk all greiðlega niður Drangahálsinn að sunnan af því gott var veðrið. Drangarnir eru eflaust myndaðir svo að fjallið hefir verið utan til hátt en eggþunnt efra og í því eru margir gangar og hefir vatn í giljum skorið sig niður beggja megin og helst fylgt göngunum þangað til fjallið var gegnskorið og stóðu strýtur eftir. Enn þá sjást tilsýndar gangamenjar í Drangaskörðunum. Riðum fyrir Skerjasundsmúlann að Engjanesi. Þar fékk eg bambuslegg hjá Drangavíkurbónda329 sem var að slá þar í kring. Slæjur þessar að sjá varla ljá berandi og ólíkt er lélegri jurtagróður hér í syðri fjörðunum en hinum nyrðri. Á eyrunum fyrir norðan mynnið á Eyvindará fann eg baunagrösin, sem Eggert Ólafsson talar um, vaxandi í sandinum en aðeins ein jurt var í blóma.330 Riðum ána neðst og var varla í kvið. Illt að koma hestunum um Básana út við Eyvind arfjörðinn að sunnan. Liggur við beinbroti í sumum klifjunum. Hvalá lítil, fullt af sel hér fyrir framan á skerjunum. Kom að Ófeigsfirði kl. rúmlega 7 um kvöldið og var um nóttina. Gott veður til kvölds og tjölduðum við til að þurrka tjaldið og farangurinn. 328 Sonur Péturs Magnússonar á Dröngum og bróðir Guðmundar Péturssonar er bjó þar fram yfir aldamót. Jón bjó síðan í Stóru-Ávík. 329 Friðrik Jóhannesson. 330 Eggert Ólafsson (1975), bls. 291. Þarna er baunagras enn mjög áberandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.