Hugur - 01.01.2019, Page 71

Hugur - 01.01.2019, Page 71
 Kennisetning Plótinosar um efnið sem frumbölið í Níund I.8 (51) 71 skaðar okkur né veldur það okkur iðrun, áhyggjum eða syndum. En samt sem áður er það, samkvæmt Plótinosi, rót allra þessara kunnuglegu meina. Sé málið skoðað frá almennu sjónarhorni og innan kerfis Plótinosar ætti kannski ekki að koma á óvart að efnið sé hið slæma sjálft: efnið er á botninum, hið Góða (hið Eina) er á toppnum á stigveldisskiptri mynd Plótinosar af veruleik- anum. Þetta eru sem sagt öndverðu pólarnir og í kerfi Plótinosar og samkvæmt honum sjálfum vissulega andstæður (I.8.6).3 Þó er ekki þar með sagt að efnið sé slæmt, því eins og við munum sjá, þá er Próklos, sem hafði í grundvallaratriðum sömu heimspekilegu sýn og Plótinos, ósammála því. Hann hafnar því að efnið sé andstæða hins Góða og að efnið sé slæmt. Áður en við förum út í smáatriðin í kennisetningu Plótinosar um efnið sem hið slæma og ágreiningsefni þeirra Próklosar þar að lútandi, skulum við íhuga málið í víðara samhengi. Það sem oft er kallað vandi hins illa, e. the problem of evil en réttara væri að kalla bölsvandann, er ráðgáta sem sprettur upp innan kristinnar (íslamskrar, gyðinglegrar og persneskrar) guðfræði: Ef heimurinn var skapaður af velviljuðum, almáttugum og vitrum guði, hvernig getum við þá gert grein fyrir þeirri staðreynd að heimurinn virðist langt í frá fullkominn, raunar fullur af böli? Sjá má tilbrigði við þessa spurningu í fornri, heiðinni hugsun. Þess verður fyrst vart af fullum þunga í stóuspekinni: stóuspekingar trúðu því að allt sem gerist sé verk útsjónarsams logos sem fyrir þeim var Seifur. Þeir veita tvenns konar skýr- ingar á því sem virðist ógeðfellt við heiminn: flest af þessu sem virðist vont, eins og fátækt, slys, veikindi og dauðsföll, er í rauninni alls ekki slæmt þótt fáfróðum og spilltum sálum kunni að sýnast svo. Í öðru lagi hafa mannverur frelsi: vegna þess að við búum yfir skynsemi er það á okkar valdi að taka réttar ákvarðanir og móta með okkur góða skapgerð, sem tryggir okkur hamingju. Þetta frelsi er ein af þeim guðsgjöfum sem Seifur gaf okkur af forsjón sinni. Ef við misbeitum frelsinu getum við ekki áfellst Seif, heldur verðum að áfellast okkur sjálf.4 Eftir því sem ég kemst næst eru flest kristin svör við þessu vandamáli tilbrigði við þessi tvö stóísku svör. Það að snúa sér frá guði af fúsum og frjálsum vilja, sem kristnu fólki verður tíðrætt um í tengslum við fall Lúsífers og fyrstu synd mannanna í aldingarðinum Eden, felur í raun í sér afbrigði af síðarnefnda stóíska svarinu. Í þessu sambandi er platonistum fornaldar sérstakur vandi á höndum, því líkt og svo margt annað áhrærir er enga ítarlega, kerfisbundna umræðu um eðli hins slæma að finna hjá Platoni. Hins vegar má finna ýmsar mikilvægar málsgreinar og ummæli hjá Platoni, sem fylgismenn Platons í fornöld þróuðu nánar.5 Hér skiptir túlkunin á Tímæosi Platons auðvitað höfuðmáli. Platon stillir fram ver- 3 Í 6. kafla I.8. færir Plótinos rök fyrir því að hið Góða og efnið séu andstæður. Í því felst að kynna til sögunnar víðari skilning á „andstæðu“ en gert er ráð fyrir í Kvíum 5 eftir Aristóteles: samkvæmt Aristótelesi hefur frumveran (ousia) enga andhverfu. Plótinos virðist skilja þetta sem svo að þar með sé gefið í skyn að það sem er handan verunnar, þ.e. hið Góða, geti heldur ekki átt sér and- hverfu samkvæmt Aristótelesi. Gegn þessu færir Plótinos rök og kemst að þeirri niðurstöðu að „hlutir, sem eru alveg aðskildir og annar þeirra ber í sér andhverfu hvers þess sem er uppfylling verunnar í hinum, hljóta að vera allra mestu andhverfur ef með andhverfum er átt við hluti sem eru sem ólíkastir hvor öðrum“ (I.8.6, 38–41; sbr. Aristóteles, Kvíarnar. 6. 6a17–18). 4 Sjá Michael Frede (2011), 5. kafla, varðandi þessa hlið á stóuspeki. 5 T.d. Platon, Þeaít. 176, Rep. 379c, 617e, Tim. 29e–30a. Hugur 2019-Overrides.indd 71 21-Oct-19 10:47:05
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.