Hugur - 01.01.2019, Blaðsíða 91

Hugur - 01.01.2019, Blaðsíða 91
 Kennisetning Plótinosar um efnið sem frumbölið í Níund I.8 (51) 91 (að þeirri síðustu undanskilinni) er lík fyrirmyndarorsök sinni, þ.e.a.s. hefur ein- ingu til að bera að einhverju marki, en einnig ólík, þ.e. minna sameinuð en orsök hennar. Þar af leiðir að mynd af X er bæði lík og ólík X, verandi hvort tveggja ein og heil og ekki ein og heil. Þetta veldur ýmsum skringilegheitum í kerfinu, strax á sviði hins Góða og Hugarins. Því jafnvel þótt fyrsta afurð hins Eina, Hugurinn, sé ekki slæmur, er hann augljóslega minna góður og minna sameinaður en hið Góða sjálft. Þannig að strax á fyrsta stiginu framleiðir hið Góða eitthvað sem er óæðra – manni liggur við að segja verra – og ólíkt sér. En ef hið Góða á að framleiða eitthvað annað, þá hlýtur afurð þess auðvitað að vera síður góð en það sjálft. Auk þess er það ein grundvallarforsenda kerfisins að hið Góða muni framleiða eitthvað annað. Úr því að svo er, og í ljósi annarra forsendna sem hér hafa verið reifaðar, þá leiðir af því að á endanum verður til eitthvað sem hefur eðliseiginleika efnisins og þetta mætti að sönnu kalla slæmleika. Önnur afleiðing af þessum síðustu þönkum er að það getur farið að virðast ankannalegt að Plótinos einskorði hugtakið „slæmt“ við skynheiminn. Maður gæti haldið að sjálfur Hugurinn, jafnvel þótt hann sé mjög góður, sé einnig dá- lítið slæmur, því hann stenst ekki alveg samanburð við fullkomleika hins Góða, og hliðstæð rök gilda um Sálina. Við gætum jafnvel haldið að slíka skoðun, að Hugurinn og Sálin séu dálítið slæm, sé að finna í tökum mínum á merkingu orðsins „slæmt“ sem er í húfi í röksemdafærslunni í aðdraganda skilgreiningar- innar á „slæmleika“ út frá neitandi hugtökum (sjá bls. 76 hér að ofan). En þannig er málum ekki háttað, samkvæmt Plótinosi: „slæmt“ einskorðast við skynjanlega heiminn. Eins og áður hefur komið fram er hann reiðubúinn að samþykkja að Sálinni og jafnvel Huganum sé að sumu leyti ábótavant samanborið við hið Góða, en þau eru ekki slæm og eru raunar fullkomin á sína vísu (sjá bls. 87 hér að ofan). Ein ástæða fyrir þessu er eflaust sú að Plótinos tekur mjög alvarlega fullyrðingu Platons í Þeætetosi 176a þar sem segir: „Böl verður aldrei upprætt … því það verður alltaf að vera eitthvað sem er andstætt hinu góða; og ekki er hægt að finna því stað meðal goðanna, heldur verður það óumflýjanlega á sveimi um dauðlega náttúru og þetta svið hérna.“ Að hans mati má segja að hvaða sál sem er tilheyri guðlega sviðinu, svo að hann hefur orð Platons fyrir því að í sálum sem slíkum sé ekkert slæmt. Önnur skýring og heimspekilegri, ef svo má segja, á afstöðu hans í þessu máli er sú staðreynd að hann staðhæfir að meira að segja sálir séu verundir, heilar verur, en hlutir í skynjanlega heiminum séu það hins vegar ekki. Svo að þótt Plótinos viðurkenni að Sál og Hugur séu ekki jafn fullkomin og hið Góða, myndi hann samt staðhæfa að huglægir hlutir séu fullkomnir á sína vísu. Jafnvel þótt hinn huglægi hestur, til dæmis, sé ekki fullkomnasta fyrirbæri sem til er og sé ým- iss ábótavant miðað við hið Góða, er honum samt sem áður í engu ábótavant sem hesti. Skynjanlegar verur bregðast hins vegar vegna þess að þær eiga hlutdeild í efninu; þær eru ekki fyllilega og einvörðungu það sem þær eru sagðar vera. Þar af leiðandi eru þær lélegar, þ.e. slæmar, verur. Niðurstaðan er sem sagt sú að skoðanir Plótinosar á efninu og slæmleika séu ekki mótsagnakenndar. Að minnsta kosti hrína hinar venjulegu mótbárur gegn Hugur 2019-Overrides.indd 91 21-Oct-19 10:47:06
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.