Hugur - 01.01.2019, Blaðsíða 100
100 Atli Harðarson
að um hverja frjálsa ákvörðun viljans þurfi fyrst að ákvarða hvort maður vill taka
þá ákvörðun eða einhverja aðra. Með þessu móti verða ekki ótal liðir í rununni
heldur aðeins tveir: Löngun og ákvörðun um að fresta því að láta undan henni.
LoLordo bendir hins vegar á staði í texta Lockes sem gefa ástæðu til að efast
um að hann hafi talið hverja frestun viljaverk.37 Það samrýmist að minnsta kosti
flestu sem Locke segir í kaflanum um sjálfstjórn að hægt sé að temja mönnum
að staldra við til að hugsa áður en framkvæmt er og sú tamning leiði til þess að
þeir geri það af vana án sérstakrar ákvörðunar í hvert sinn. Sumt sem Locke segir
í Skilningsgáfunni og Menntamálunum bendir raunar til þess að hann hafi álitið
slíka tamningu færa mönnum sjálfstjórn. Hvernig sem þessu er varið er svo mikið
víst að Locke áleit að menn gætu ekki haft stjórn á sjálfum sér nema þeir hefðu
mátt til þess að fresta því að láta undan löngunum og öðrum óróleika.
Í stuttu máli er kenning Lockes um stjórn skynseminnar á viljanum sú að slík
stjórn sé möguleg vegna þess að:
a) Þegar einhver óróleiki knýr á hugann, þá getur maður frestað því að láta
undan og notað tímann, meðan fresturinn varir, til að hugsa um hvað hann
er að því kominn að gera.
b) Umhugsunin getur skapað nýjan óróleika sem knýr fastar á.
c) Hafi maður tileinkað sér réttar venjur, þá skapar umhugsunin óróleika sem
leiðir til góðrar breytni.
Það sem hér er lýst í lið c kemur ekki skýrt fram í texta Ritgerðarinnar en styðst
við það sem Locke segir í Skilningsgáfunni og Menntamálunum.
Þjálfun hugans – Skilningsgáfan
Í upphafi Skilningsgáfunnar segir Locke að mannshugurinn þarfnist þjálfunar og
hæfileikar sem „litið er á sem gjafir náttúrunnar séu, þegar grannt er skoðað, til
orðnir fyrir æfingu, og rísi í hæðir með endurteknum athöfnum“.38 Skömmu
síðar bætir hann í og segir:
Viljir þú fá mann til að rökræða svo vel sé, þá verður þú að venja hann
við það í tíma, æfa hug hans í að greina tengsl hugmynda og fylgja þeim
einni af annarri. Ekkert er betur til þessa fallið en stærðfræðin. Því hygg
ég að hún skuli öllum kennd ef tími og tækifæri gefast, og það til þess
að gera þá að skynsemisverum fremur en til þess að gera þá að stærð-
fræðingum; því þótt við öll köllum okkur svo, því við teljum okkur til
þess borin, má með sanni segja að náttúran gefi okkur aðeins sáðkornið;
við erum borin til þess að vera skynsemisverur, ef okkur þóknast, en það
er notkun og æfing sem gerir okkur slík, og við erum það aðeins í þeim
mæli sem iðja og ástundun hafa þokað okkur áleiðis.39
37 LoLordo 2013.
38 Locke 1993a: §4.
39 Locke 1993a: §6.
Hugur 2019-Overrides.indd 100 21-Oct-19 10:47:07