Hugur - 01.01.2019, Side 117

Hugur - 01.01.2019, Side 117
 Við flóttafólk 117 að fela þá staðreynd að við erum gyðingar. Okkur tekst þetta ekki og okkur getur ekki tekist þetta; undir hulu „bjartsýninnar“ kemur maður auðveldlega auga á vonlausa sorg aðlögunarsinna. Orðið aðlögun hefur öðlast „djúpa“ heimspekilega merkingu fyrir okkur sem erum frá Þýskalandi. Það er vart hægt að átta sig á því hvað við tókum þetta alvar- lega. Aðlögun merkti ekki þá samlögun sem nauðsynleg er gagnvart því landi sem við fæddumst í eða gagnvart fólkinu hvers tungumál vildi svo til að við töluðum. Meginreglan er sú að við lögum okkur að öllu og öllum. Þetta viðhorf varð mér dagljóst af orðum samlanda míns sem greinilega kunni að tjá tilfinningar sínar. Nýkominn til Frakklands stofnaði hann eitt af þessum aðlögunarfélögum þar sem þýskir gyðingar héldu því fram hver við annan að þeir væru nú þegar orðn- ir Frakkar. Í fyrstu ræðu sinni sagði hann: „Við höfum verið góðir Þjóðverjar í Þýskalandi og fyrir vikið verðum við góðir Frakkar í Frakklandi.“ Áheyrendur fögnuðu ákaft og enginn hló; við vorum ánægð með að hafa lært hvernig við gætum sannað tryggð okkar. Ef þjóðrækni snerist um venju eða ástundun værum við þjóðræknasta fólk heims. Rifjum upp herra Cohn okkar: hann hefur sannarlega slegið öll met. Hann er fyrirmyndarinnflytjandinn sem ávallt kemur strax auga á fjöllin í hverju því landi, sem hræðileg örlög hans hafa rekið hann til, og tekur ástfóstri við þau. En vegna þess að þjóðrækni er ekki enn mæld í ástundun reynist erfitt að sann- færa fólk um að við séum einlæg í þessum síendurteknu umbreytingum okkar. Þessi barátta skapar skort á umburðarlyndi í okkar eigin samfélagi; við krefjumst fullrar staðfestingar utan okkar eigin hóps, því við erum ekki í stöðu til þess að öðlast hana frá innfæddum. Þegar innfæddir standa frammi fyrir skrýtnum ver- um eins og okkur fyllast þeir grunsemdum; almennt séð geta þeir aðeins skilið tryggð okkar við gömlu löndin. Það gerir lífið mjög napurlegt fyrir okkur. Við gætum komist undan grunsemdunum ef við útskýrðum að vegna þess að við erum gyðingar tæki þjóðrækni okkar í heimalöndunum á sig mjög sérstaka mynd. Þótt hún væri samt sem áður einlæg og djúpstæð. Við skrifuðum langar bækur þessu til staðfestingar; greiddum fyrir heilt skrifræðisbákn með það hlutverk að kanna uppruna þjóðrækninnar í fyrndinni og skýra hana tölfræðilega. Við fengum lærða menn til þess að skrifa heimspekilegar ritgerðir um forákvarðaðan samhljóm milli gyðinga og Frakka, gyðinga og Þjóðverja, gyðinga og Ungverja, gyðinga og … Þessi tryggð okkar í dag, sem svo oft er dregin í efa, á sér langa sögu. Þetta er hundrað og fimmtíu ára saga aðlagaðra gyðinga sem afrekuðu nokkuð sem aldrei hefur tekist áður: þrátt fyrir að sýna í sífellu fram á að þeir væru ekki gyðingar, tókst þeim á sama tíma að vera gyðingar samt sem áður. Örvæntingarfull ringulreið þessara Ódysseifsflækinga sem, ólíkt merkri fyrir- mynd þeirra, vita ekki hverjir þeir eru má auðveldlega skýra með því fullkomna brjálæði sem það er að neita að halda í sjálfsmynd sína. Þetta brjálæði er miklu eldra en þau undanförnu tíu ár sem hafa dregið fram í dagsljósið djúpstæðan fá- ránleika tilveru okkar. Við erum eins og fólk með áráttu sem kemst ekki hjá því að reyna að dulbúa ímyndaðan skammarblett. Fyrir vikið erum við ákaflega hrifin af hverjum nýjum möguleika sem í krafti þess að hann er nýr virðist geta gert krafta- Hugur 2019-Overrides.indd 117 21-Oct-19 10:47:08
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.