Hugur - 01.01.2019, Page 176

Hugur - 01.01.2019, Page 176
176 Steinunn Hreinsdóttir í stöðugri víxlverkun tiltekinna orða við flókin tengsl baklægra aðstæðna. Þessi tvöföldun merkingar er eins konar ferlisfyrirbæri eða líkamleg-málleg samfella (e. somatic-semantic).36 Hið undirskilda má einnig skilja með skírskotun til inn- sæisþekkingar (e. intuition) í ljósi heimspeki Bergsons,37 en innsæisþekkingin tilheyrir hinum ómælanlega tíma og innra flæði sjálfsins, óháð skynsemi og rök- hugsun og er forhugtakaleg. Að mínu mati leitast Irigaray við að fanga hið undirskilda í heimspeki sinni, hina líkamlegu merkingu sem hefur skotist undan í vestrænni heimspekilegri hefð. Í heimi fyrirbæra verðum við fyrir áreiti og bregðumst jafnan við því áður en ígrundun og málgjörðir koma til. Irigaray leggur áherslu á skynjunina sem fer á undan skilningi okkar og hugmyndum um heiminn. Ákveðin andleg virkni er því til staðar í líkamanum, einhver forhugtakaleg og verufræðileg virkni sem er staðsett (e. situated), bundin staðveru og kynstöðu hverju sinni. Þessi andlega virkni er tengd hrifnæmi milli tveggja, tengd hinu ósagða og ókomna, mismun- inum sjálfum sem leyfir einstaklingum að verða til, þökk sé ferlinu fram og til baka milli sjálfs síns, hins, hlutarins eða heimsins.38 Heimspeki Irigaray miðar að því að endurnýja merkinguna sem tekur hliðsjón af kynjamismun og flæði reynslunnar, þ.e. ósamhverfum og tilfinningalegum tengslum sjálfsverunnar við aðra og umheiminn. Reynslan og hin skynjaða merking er alltaf undirliggjandi þáttur málnotkunar, sem þýðir að með sífellt nýrri reynslu hins stundlega endurnýjast merkingin í takt við tímann sem líður. Irigaray trúir því að unnt sé að komast handan (hlutlægrar) orðræðu, kynjatvíhyggju og kyngervis, en leiðin liggur gegnum líkamann og hið skynjandi sjálf sem fer á undan tungumálinu. Irigaray víkur frá hefðbundnum hugmyndum um kyngervi og kynjatvíhyggju að því leyti að með mismunarhugs- un sinni leitast hún við að skapa menningu tveggja, samtal mismunar (e. dialogue of difference)39, þar sem kynin geta skipst á skoðunum án þess að þær séu fyrir fram úthugsaðar, deilt ólíkum upplifunum sínum og nálgast hvort annað á ferskan og fordómalausan hátt. Þannig skerpir samtalið vitund og hefur að mínu mati ákveðið meðferðar- og sköpunargildi, þ.e. sem leið til þess að víkka út merk- inguna og fleyta henni áfram. Irigaray er sammála Lacan um að sjálfsveruleikinn verði til í tungumálinu, en hún telur hins vegar að handan margra setlaga merk- inga og kenninga og í krafti líkamlegrar gagnrýnnar hugsunar sé hægt að finna hið skynjandi, forætlandi og hugsandi sjálf. Með því að hlusta á líkamann og hið undirskilda, baklægar aðstæður vitsmunalegrar þekkingar, er unnt að fleyta merkingunni áfram í átt að nýrri merkingu og dýpri sannleika sem samræmist betur reynslu okkar af veruleikanum. Reynslufyrirbærafræði (e. experiential phen- omenology), hugtak sem víða hefur verið notað hjá femínistum og tengist hinu aðstæðubundna sjónarhorni, hverfist einmitt um að orða hið óorðaða og skynjaða, segja hvað okkur finnst í rauninni hér og nú. Ég tel að bæði Irigaray og Gendlin 36 Gendlin 1992. 37 Bergson 1988. 38 Irigaray 2013: 158–159. 39 Irigaray 2002: vii. Hugur 2019-Overrides.indd 176 21-Oct-19 10:47:12
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.