Litli Bergþór - 01.06.2022, Síða 39
Arnar málari, Miðhúsum, s. 777 5872 kt. 160865-5129
Bisk-verk ehf s. 893-5391 kt. 530492-2069
Espiflöt ehf, Reykholti s. 486 8955 kt. 540782-0249
Ferðaþjónustan Gullfoss ehf, Brattholti s. 486 8979 kt. 680395-2419 (Hótel Gullfoss)
Flotferðir ehf - Kúluhús í Hrosshaga s. 696 0726 kt. 631014-0890
Friðheimar, Reykholti s. 486 8815 kt. 570114-0420
Garðyrkjustöðin Kvistar ehf, Reykholti s. 694 7074 kt. 700604-2250
Garðyrkjustöðin Gufuhlíð ehf s. 486 8650 kt. 420594-2249
Gljásteinn ehf, Myrkholti s. 486 8757 kt. 500706-0230
Gullfosskaffi við Gullfoss s. 486 6500 kt. 660994-2039
Helgi Gumundsson rafvirki s. 864 6960 kt. 250655-3479
Hótel Geysir, Haukadal s. 480 6800 kt. 481293-2519
Húsið - gisting, Bjarkarbraut 26 Rh. s. 847 5057 kt. 170264-7899
JH-vinnuvélar ehf/ Brekkuheiði ehf s. 892 7190 kt. 430197-3209
Miðhúsabúið ehf, Miðhúsum s. 486 8640 kt. 430308-0680
Slakki dýragarður s. 693 0132 kt. 530212-1730
Úthlíð ferðaþjónusta s: 486 8770 kt. 680591-1569
Eftirtaldir styrkja útgáfu Litla-Bergþórs
Hrós vorblaðs Litla - Bergþórs fær
sveitarfélagið Bláskógabyggð fyrir að bjóða
starfsmönnum þeirra stofnana og félaga sem koma
að æskulýðsstarfi og skóla upp á námskeiðið
„Verndarar barna‟, sem haldið er af Barnaheill.
Verndarar barna felur í sér fræðslu í forvörnum
og viðbrögðum við kynferðisofbeldi á börnum.
Markmið námskeiðsins er að veita fullorðnu
fólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að
fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðisofbeldi
af festu og ábyrgð.
Hrós blaðsins fer einnig til Biskupsstofu,
Verndarsjóðs Skálholts, starfsfólks staðarins
og Sóknarnefndar Skálholtssóknar vegna
framkvæmda í Skálholti. Eins og vegfarendur
um Skálholtsveg hafa líklega tekið eftir standa yfir
heilmiklar framkvæmdir í Skálholti og á þeim öllum
að vera lokið fyrir 60 ára afmæli kirkjunnar 2023.
Lastvorblaðs Litla- Bergþórs fær
Pósturinn fyrir að skerða sífellt þjónustu
sína við landsbyggðina og gera þannig
stórlega upp á milli íbúa landsins háð
búsetu. Frá og með 1. maí er pósti dreift í
Bláskógabyggð tvisvar í viku, á þriðju- og
fimmtudögum og er sveitarfélagið allt á
svokölluðu grænu svæði.
Þetta er skerðing úr póstburði annan
hvern virkan dag að staðaldri niður í
tvisvar í viku.
Léleg upplýsinga- og símaþjónusta
póstsins er ekki heldur til fyrirmyndar.
Pakkar fást ekki áframsendir frá
pósthúsinu heim á bæi, ruglingur með
dreifingardaga o.fl.