Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 14
14 Litli-Bergþór
Eins og sagt var frá í síðasta
blaði voru hestamannafélögin
í Uppsveitunum sameinuð þann 1. júlí 2021, þ.e.
hestamannafélögin Logi í Biskupstungum, Smári í
Hrunamanna-, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Trausti
í Laugardal, Þingvallasveit, Grímsnesi og Grafningi.
Fyrirhugað var að halda aðalfund nýja félagsins í
janúar, en um það leyti sem boða átti fundinn skullu
á takmarkanir sem gerðu það ómögulegt. Starfsstjórn
hélt þó áfram við að undirbúa starf vetrarins. Leitað
var til félagsmanna um að taka þátt í nefndarstörfum
og tóku þeir vel í það.
Fyrsti aðalfundur félagsins var svo haldinn í
Aratungu þann 3 mars. Mæting á fundinn var góð, en
um 50 manns mættu. Kosið var um nafn á nýja félagið,
en fram að aðalfundi hafði verið notast við vinnuheitið
Hestamannafélag Uppsveitanna. Kosið var í tveimur
umferðum. Í fyrri umferð var kosið um sjö nöfn sem
að stjórn félagsins lagði fyrir fundinn. Það voru nöfnin
Frigg, Hestamannafélag Uppsveita, Jökull, Kjölur,
Krapi, Skör og Þrenning. Eftir að atkvæði höfðu verið
talin eftir fyrri umferð, kom í ljós að nöfnin Jökull og
Kjölur höfðu fengið flest atkvæði. Aftur var kosið og
þá um nöfnin sem flest atkvæði höfðu fengið, og var
það nafnið Jökull sem hlaut flest atkvæði.
Kosið var í stjórn félagsins og er hún eftirfarandi:
Bragi Viðar Gunnarsson, Túnsbergi var kjörinn formaður
Ólafur Gunnarsson, Helgastöðum gjaldkeri
Svavar Jón Bjarnason, Reykholti ritari
Ragnheiður Eggertsdóttir, Borg meðstjórnandi
Ragnhildur Stefanía Eyþórsdóttir, Flúðum meðstjórnandi
Vilborg Ástráðsdóttir, Skarði meðstjórnandi
Vilborg Hrund Jónsdóttir, Böðmóðsstöðum meðstjórnandi
Eftir áramótin hófst
námskeiðastarf og var
það Æskulýðsdeildin sem
reið á vaðið og hélt fyrsta
námskeiðið þann 12.
janúar. Æskulýðsdeildin
hefur haldið námskeið alla
miðvikudaga síðan þá og
mun það verða þannig til
27. apríl. Einnig var haldið
eitt helgarnámskeið. Í apríl
og maí er stefnt á að halda
tvö námskeið í Reiðhöllinni
á Flúðum fyrir börn sem
eiga ekki hesta. Í sumar
verða svo vikunámskeið
fyrir börn, skemmtimót og
námskeið fyrir börn sem
eiga ekki hesta, sem stefnt er á að halda í júlí.
Reiðnámskeið fyrir fullorðna hófst í lok janúar
þegar sex skipta námskeið var haldið með Finni
Jóhannessyni. Næsta reiðnámskeið kenndi Marijo
Varis og hófst það 21. mars og var einnig kennt í sex
skipti. Félagið hélt svo járninganámskeið í febrúar og
mars og var kennari Arnór Óli, járningamaður á Hellu.
Mikil ásókn var á það námskeið og voru því haldin
þrjú námskeið til að anna eftirspurn.
Vetrarmótin hafa verið á sínum stað, en búið er að
halda tvö mót í reiðhöllinni og hefur skráning verið
ágæt. Fyrirhugað er að halda páskatölt laugardaginn
16. apríl.
Líkt og fyrri ár hefur Uppsveitadeildin verið á
sínum stað í vetur, en tvö keppniskvöld eru búin og
það þriðja verður haldið 15. apríl. Þátttaka í deildinni
er góð og bekkirnir þétt setnir á keppniskvöldunum.
Í ár verður haldið Landsmót Hestamanna á Hellu.
Hestmannafélagið Jökull mun halda sameiginlega
úrtöku með Hestamannafélaginu Geysi á Hellu dagana
10.-12. júní.
Þegar stofnað er nýtt hestamannafélag er að mörgu
að hyggja. Eitt af því er að stjórn Jökuls vill á næstu
mánuðum koma á laggirnar heimasíðu félagsins.
Heimasíðan myndi auðvelda upplýsingagjöf, vera
með viðburðaskrá og fleira. Á meðan heimasíðan
er ekki komin í loftið hvetjum við alla til að fylgja
Hestamannafélaginu Jökli á facebook undir nafninu
„Hestamannafélagið Jökull“.
Svavar Jón Bjarnason,
ritari Hestamannafélagsins Jökuls.
Hestamannafélagið Jökull
Fréttir af sameinuðu félagi
Ingibjörg Elín, Sigrún Margrét og Kirsten á fyrsta vetrarmótinu í vetur.
Bára Másdóttir tók myndina.
Arnór Óli sýnir nemendum
heitjárningu.