Litli Bergþór - 01.06.2022, Side 55
Litli-Bergþór 55
Snemma sl. haust var svo komið að notast þurfti við
eina klukku frá 12. öld sem er inni í kirkjunni og var
jólunum hringt inn með henni, að sögn sr. Kristjáns
Björnssonar.
Í turni Skálholtsdómkirkju eru fimm kirkjuklukkur
sem gefnar voru til kirkjunnar á byggingartímanum.
Kirkjan á einnig þrjár gamlar klukkur, ein þeirra
hangir í í klukkuturni, ein er á sýningu í Gestastofu og
sú þriðja hangir í Maríustúku kirkjunnar. Er sú gjöf frá
norskri fjölskyldu en upprunalega komin úr Skálholti.
Í tilefni Skálholtshátíðar 1956 gáfu þrjár Norður-
landaþjóðir kirkjuklukkur í Skálholt og studdu auk þess
við endurreisn staðarins og byggingu kirkjunnar með
mörgu öðru móti. Svíar gáfu tvær klukkur, Norðmenn
eina og Finnar eina. Danska klukkan kom ekki í
kirkjuna fyrr en 1961, en það voru dönsku bræðurnir
Ludvig Storr, aðalræðismaður í Reykjavík og Edvard
Storr, stórkaupmaður í Kaupmannahöfn, sem gáfu
klukkuna. Fannst þeim ótækt að engin dönsk klukka
væri í Skálholti í félagi við hinar norrænu klukkurnar.
Stærstar og þyngstar eru sænsku klukkurnar tvær,
sem vega hvor um sig 700 kg, en sú danska er léttust,
500 kg og var það hún, sem féll niður árið 2002 og
brotnaði.
Á fallegum degi þ. 7. júní 2022 var loks komið að
því að skipta út brotnu klukkunni. Stærsta brotið úr
þeirri gömlu var híft niður úr turninum og ný klukka
hífð upp og komið fyrir í hennar stað. Mun nýja
klukkan hljóma í fyrsta sinn síðar í júní. Hún er steypt
í Hollandi hjá Petit & Fritsen og hefur tóninn H1.
Smíðuð hafa verið ný rambolt fyrir allar klukkurnar
fimm, auk þess sem ein þeirra fær nýjan hamar.
Vélsmiðjan Óðinn smíðaði nýjar járngrindur sem
halda klukkuverkinu uppi og síðan verða raflagnir í
turninum endurnýjaðar. Nýja klukkuverkið er smíðað
í Danmörku og í júní komu dönsku smiðirnir í Skálholt
til að hífa klukkurnar upp á grindurnar og tengja allt
saman.
Klukkuverkið er nánast allt tölvustýrt, sem verður
mikil breyting fyrir Skálholt.
Klukkubrotið frá dönskum vinum 1960. Nýja klukkan frá Verndarsjóði Skálholtsdómkirkju lögð af stað upp í turn...
..og svífur hér niður um opið á þaki kirkjuturnsins.
Að sögn Kristjáns Björnssonar vígslubiskups var
búið að rjúfa þekjuna á suðurhluta turnsins áður en
hafist var handa við klukkuskiptin og undirbúa verkið,
sem gekk mjög vel og var fagmannlega unnið. Byrjað
var á því að hífa niður gömul rambolt og ýmislegt dót
sem var þarna uppi ásamt brotnu klukkunni og þegar
nýja klukkan var komin upp þá hífðu þeir einnig
upp nýju steinflísarnar sem eiga að fara á þakið. Það
verður mikill munur að geta hringt inn í Skálholti,
sagði Kristján.
Það var krani frá JÁVERK sem sá um hífingarnar,
en Múr og mál sér um viðgerðir á ytra byrði kirkjunn-
ar.
Verndarsjóður Skálholtsdómkirkju fjármagnar
klukkukaupin. Þar sem enn vantar aðeins upp á
fjármögnunina eru öll framlög vel þegin.
Geirþrúður Sighvatsdóttir tók saman.
Heimildir: kirkjan.is, vefur Skálholts, sr Kristján
Björnsson vígslubiskup, Sunnlenska.is, RÚV.