Litli Bergþór - 01.06.2022, Síða 27
Litli-Bergþór 27
Skúladóttur og og Gústafs Sæland, sem lengi voru
rósabændur á Sólveigarstöðum í Laugarási. Sýningin
er virðingarvottur við líf og starf þeirra hjóna og
endurspeglar minningar um rósir, sem spruttu í snjó.
Vassilis Triantis er fæddur í Grikklandi en býr og
starfar í Hollandi. Hann sótti sér menntun í líffræði og
starfar nú jöfnum höndum að líffræðirannsóknum og
við ljósmyndun. Hann hefur tekið þátt í sýningum víða
og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Sýningin og
bókin sem gefin var út með henni hafa hlotið sérstakar
viðurkenningar og tilnefningar til verðlauna erlendis.
Hægt er að sjá valið efni úr sýningunni á:
https://www.vassilistriantis.com/roses-grew-on-snow
Í Hönnunarsafninu má sjá sýningu um sundstaði og
sundmenningu. Sýningin stendur til 25. september
2022 og fóru ljósmyndarar á vegum sýningarinnar víða
um land til að safna efni, þ.á m. í Íþróttamiðstöðina í
Reykholti. Nánari upplýsingar um sýninguna má finna
á slóðinni:
https://www.honnunarsafn.is/is/syning/sund.
Grasrótarverðlaun KSÍ. Sá ánægjulegi atburður
átti sér stað í febrúar að íþróttafélagið Uppsveitir
(ÍBU) fékk grasrótarverðlaun KSÍ fyrir árið 2021.
Á heimasíðu KSÍ kemur fram að augljóst þyki að
frábært starf í knattspyrnu barna og unglinga sé
unnið í Uppsveitum og þar kristallist mikilvægi
knattspyrnunnar í samfélagi okkar, jafnt í stórum
sveitarfélögum sem smáum. Það voru þeir Gústaf
Sæland og Sólmundur Magnús Sigurðarson sem
tóku við verðlaununum frá formanni KSÍ, Vöndu
Sigurgeirsdóttur. Sjá má pistla frá ÍBU og íþróttadeild
á öðrum stað í blaðinu.
Páskasýningin í Húsinu á Eyrarbakka þetta árið bar
heitið Með mold á hnjánum og er samstarfsverkefni
Héraðsskjalasafns Árnesinga og Byggðasafns Árnes-
inga. Á sýningunni var stiklað á stóru yfir sögu og
þróun garðyrkju í Árnessýslu. Garðyrkja hefur
stuðlað að uppbyggingu þéttbýlis og haft mikil áhrif
á byggðaþróun í sýslunni. Rakin var þróun ræktunar
frá heimagörðum torfbæja upp í umfangsmikla
atvinnugrein sem skapar fjölda manns atvinnu
með hugvitsamlegri nýtingu náttúruauðlinda víða í
sýslunni. Sýningunni lauk 6. júní.
Styrkur til Gljásteins. Í byrjun maí var 153 milljónum
króna varið úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
til verkefna á Suðurlandi fyrir árið
2022. Þar af fékk Gljásteinn
ehf. 5,5 milljóna króna styrk
til þess að endurnýja og bæta
salernisaðstöðu fyrir fatlaða í
Árbúðum við Kjalveg.
Listamaður maímánaðar í Gallerý
Listaseli á Selfossi var dr. Sigrún
Lilja Einarsdóttir. Hún er dósent við
Háskólann á Bifröst og búsett í Laugarási
í Biskupstungum. Íslenska sauðkindin
er uppistaðan í hennar listsköpun ásamt
tilvísun í íslenska náttúru, þá einkum
Mýrdalinn, hennar heimasveit.
Sveitarstjórnarkosningar voru haldnar þann 14. maí
2022.
Í Bláskógabyggð voru í framboði tveir listar, T og Þ.
Frambjóðendur T-listans voru:
1. Helgi Kjartansson, kennari og oddviti, Dalbraut 2, Reykholti
2. Stefanía Hákonardóttir, rafmagns- og heilbrigðisverkfræðingur,
Laugardalshólum
3. Sveinn Ingi Sveinbjörnsson, vélvirki, Heiðarbæ 4
4. Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, bóndi, Bræðratungu
5. Guðni Sighvatsson, íþróttafræðingur og kennari, Hrísholti 10
Laugarvatni
6. Áslaug Alda Þórarinsdóttir, þjónustustjóri, Spóastöðum 1
7. Elías Bergmann Jóhannsson, starfsmaður íþróttamannvirkja
Bláskógabyggðar á Laugarvatni, Reykjabraut 5
8. Sólmundur Magnús Sigurðarson, stuðningsfulltrúi og þjálfari,
Austurhlíð 3
9. Grímur Kristinsson, smiður og búfræðingur, Ketilvöllum
10. Trausti Hjálmarsson, bóndi, Austurhlíð 2
11. Auður Ólafsdóttir, húsmóðir og hársnyrtir, Litla-Fljóti
12. Arite Fricke, hönnuður og listgreinakennari, Bæjarholti 14
Laugarási
13. Kristinn Bjarnason, verslunarmaður, Brautarhóli
14. Valgerður Sævarsdóttir, bókasafnsfræðingur, Garði
Laugarvatni
Jaaá, blessuð
sauðkindin. Sigrún
Lilja er snillingur.
Frá opnun sýningarinnar „Þar sem rósir spruttu í snjó“, 22. janúar
2022..