Litli Bergþór - 01.06.2022, Qupperneq 9

Litli Bergþór - 01.06.2022, Qupperneq 9
Litli-Bergþór 9 Við Morten giftum okkur í Hrosshaga árið 2015. Morten starfar sem umhverfisefnafræðingur hjá fyrirtæki sem heitir Cowi, við hreinsun á menguðum jarðvegi, grunnvatni og lofti. Núna eru börnin orðin þrjú, Manfred fæddur 2013, Björk fædd 2016 og Elín fædd 2021. Við búum á Østerbro í Kaupmannahöfn þar sem allir dafna vel og við njótum góðs af því að vera í nágrenni við Jónshús, sem sér okkur fyrir íslensku sælgæti í sjálfsalanum og íslenskum bókum á bókasafninu. Þegar búið er í borg eins og Kaupmannahöfn þá getur maður upplifað innilokunartilfinningu þegar ekkert sést nema hús. Mann vantar útsýni á eitthvað annað en byggingar. Ég er þó svo heppin að við eigum hlut í sumarbústað með tengdafjölskyldunni og þar er stórkostlegt útsýni. Við notum okkur því oft að fara þangað þegar við þurfum að losna úr amstri borgarinnar.         Hjá okkur er opið allt árið! Verið velkomin Kaffihús, veitingastaður, gisting, hestaleiga www.facebook.com/Efstidalur www.efstidalur.is info@efstidalur.is s:4861186 Hvað framtíðin ber í skauti sér vitum við svo sem aldrei, en við verðum hér í Danmörku um sinn. Fjarlægðin til Íslands hefur minnkað með tækniframförunum. Með tilkomu FaceTime eða Messenger þá er alltaf hægt að hringja og „hittast‟. Og ef þarf, þá er hægt að taka flug samdægurs til Íslands. Ég hef oft sagt sem svo, að það að eiga fjölskyldu á Íslandi er eins og fyrir Dana að eiga fjölskyldu á norður Jótlandi. Það tekur álíka langan tíma að ferðast þangað og er oft jafn dýrt. uMorten og Manfred að grilla við sumarbústaðinn. Við förum aldrei í gönguferð nema með nesti og heitt kakó. Hér erum við í skógarferð við sumarbústaðinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.