Andvari - 01.01.2017, Blaðsíða 55
54 GUNNAR F. GUÐMUNDSSON ANDVARI
ræna sagnfræðingaþingið í Árósum sem fyrr er getið, andaðist Jón
Jóhannesson prófessor, einn af kennurum Björns í Háskóla. Það var í
maí 1957. Björn var um þær mundir að hasla sér völl sem einn helsti
sagnfræðingur þjóðarinnar með tvær bækur að baki og allmargar
greinar á prenti og margfróður eftir rannsóknir í erlendum skjala-
söfnum. Hann lét því slag standa og sótti um embættið sem losnað
hafði við fráfall Jóns. Aðrir umsækjendur voru dr. Björn Sigfússon
háskólabókavörður og dr. Guðni Jónsson sem þá var skólastjóri
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, og mun Björn ekki hafa tekið það nærri
sér að þessi yfirmaður hans og samherji skyldi verða fyrir valinu.151
Aðra tilraun gerði Björn fjórum árum síðar, þegar auglýst var til um-
sóknar prófessorsstaða í sagnfræði við heimspekideild Háskóla Íslands.
Fleiri höfðu augastað á embættinu og sóttu um: Bergsteinn Jónsson,
Gunnar Finnbogason og Jón Guðnason, sem allir voru með cand.mag.-
gráðu eins og Björn, Magnús Már Lárusson prófessor í guðfræði og
Þórhallur Vilmundarson sem gegnt hafði tímabundið stöðu prófessors
í sagnfræði. Þórhallur varð hlutskarpastur og var skipaður í embættið
á ríkisráðsfundi 30. júní 1961.152
Leiðin upp á tindinn er seinfær og torsótt. Í febrúar 1968 var auglýst
laus til umsóknar lektorsstaða í sagnfræði við Háskóla Íslands, og var
Björn í hópi sex umsækjenda. Hinir voru: Bergsteinn Jónsson og Jón
Guðnason, báðir menntaskólakennarar, Jón R. Hjálmarsson skólastjóri,
Loftur Guttormsson sem þá var nýkominn til starfa við Kennaraskólann
og Odd Didriksen sendikennari. Bergsteinn Jónsson hlaut embættið og
var skipaður til næstu fimm ára.153 Að lokum kom að því að Björn
fengi fast embætti við Háskóla Íslands. Hann var einn fjölmargra sem
sóttu um auglýstar stöður við Háskóla Íslands snemma árs 1971, og
að þessu sinni bar viðleitni hans árangur, enda lá doktorsritgerð hans
nú fyrir og sjálf vörnin á næsta leiti. Hún fór fram í lok júní, og fimm
dögum síðar, 1. júlí, var hann skipaður lektor í sagnfræði við Háskóla
Íslands.154 Um miðjan september var Björn settur prófessor í sögu í for-
föllum Magnúsar Más Lárussonar, sem þá var orðinn rektor Háskólans,
og var í því starfi þar til Magnús fékk lausn frá embætti árið 1976.
Björn var þá skipaður prófessor 1. apríl sama ár.155
Björn Þorsteinsson var um margt óvenjulegur kennari. Hann kom
aldrei með undirbúinn fyrirlestur í kennslustund, og hann var lítið gef-
inn fyrir að þylja upp staðreyndir úr bókum. Það var háttur hans að
ganga hægum skrefum fram og til baka og bera fram áleitnar spurn-