Fréttablaðið - 02.12.2022, Síða 76
Hjónin Bergþóra Einars-
dóttir og Eyjólfur Friðgeirs-
son hafa verið með sölubás
í Jólaþorpinu í Hafnarfirði
svo árum skiptir, en þar hafa
þau boðið upp á vörur frá
Íslenskri hollustu, fyrir-
tækinu sem þau reka, sem er
staðsett í Hafnarfirði.
gummih@frettabladid.is
„Þetta er tíunda árið í röð sem við
erum í Jólaþorpinu. Við höfum í
mörg ár verið að selja vörur okkar
á mörkuðum, til að mynda á jóla-
markaði á Ingólfstorgi í Reykjavík í
mörg ár. Við ákváðum svo að sækja
um í Jólaþorpinu, enda við sjálf
flutt í Hafnarfjörð og með fyrir-
tækið okkar þar. Okkur fannst upp-
lagt að vera í Jólaþorpinu og hefur
líkað ákaflega vel að vera þar,“ segir
Bergþóra, en Jólaþorpið var opnað
þann 18.nóvember og verður opið
allar helgar fram á Þorláksmessu.
Spurð hvaða varning þau séu
með á boðstólum í Jólaþorpinu
segir Bergþóra:
„Við erum með okkar hollustu-
vörur. Við framleiðum bláberjasaft,
krækiberjasafa og ýmsar sultur
út íslenskum berjum, erum með
þarasnakk og jurtir, kryddsalt í
gjafapakkningum, te úr íslenskum
jurtum og ýmislegt annað,“ segir
Bergþóra, sem að mestu leyti sér
um að standa vaktina í í sölu-
básnum.
„Fólk er mjög jákvætt fyrir þess-
um vörum og það er alltaf virkilega
gaman að vera í Jólaþorpinu. Það er
vel sótt af Hafnfirðingum og manni
finnst eins og fólk telji skyldu sína
að kíkja við. Það er líka að koma
fólk úr öðrum bæjarfélögum og
það eru margir útlendingar sem
leggja leið sína í Jólaþorpið. Þeir eru
hrifnir af því,“ segir Bergþóra, en
Jólaþorpið er staðsett á Thorsplani
í miðbæ Hafnarfjarðar.
Bergþóra segir að Jólaþorpið sé
alltaf að verða stærra í sniðum.
„Hafnfirðingar hafa lagt mjög
mikið upp úr því að hafa Jóla-
þorpið fallegt og það er alltaf verið
að bæta í og hafa það skemmtilegra
og betra. Það er ekki stórt en það
er ofboðslega vel heppnað. Það er
ekkert verið ofgera hlutunum þar.“
„Miðbærinn í Hafnarfirði er allt-
af smekklega og fallega skreyttur.
Sjálf búum við á Norðurbakkanum
og það er sérstaklega gaman að
keyra niður Reykjavíkurveginn
og sjá alla ljósadýrðina í bænum.
Maður saknar alltaf ljósanna
þegar þau eru tekin niður í febrúar.
Bærinn getur verið virkilega stoltur
af því hvernig hann er skreyttur og
svo hefur Hellisgerði bæst við. Það
er mikill metnaður lagður í að hafa
bæinn fallegan á þessum tíma,“
segir Bergþóra.
Mikil vinna
en skemmtileg
Bergþóra
stendur vaktina
enn eitt árið
í Jólaþorpinu
í Hafnarfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Margir fastakúnnar koma
Bergþóra segir stemninguna vera
virkilega góða í Jólaþorpinu.
„Margt af fólkinu sem kemur og
verslar hjá okkur er fastakúnnar.
Við höfum verið mjög dugleg að
vera á svona útimörk-
uðum og fólkið þekkir
okkar vöru. Svo er líka
fólk sem kemur bara og
kaupir hjá okkur fyrir jólin
af því það kaupir einhverja
sérstaka vöru fyrir jólin.
Það er gríðarleg vinna að taka
þátt í þessu og að undirbúa, en á
móti er þetta svo ánægjulegt. Þeir
aðilar sem eru að selja vörur sínar
eru allir að leggja sig fram um að
gera vel og bjóða upp á skemmti-
legar vörur. Þetta er mikil vinna
en hún er skemmtileg og gefandi.
Það er virkilega gaman að sjá
fólkið og fjölskyldurnar þegar
það kemur. Fólk er að koma með
börnin sín, fylgjast með skemmti-
atriðum, sjá jólasveinana, Grýlu
og Leppalúða og dansa
í kringum jólatréð. Mér
fannst sérlega gaman þegar
leikskólarnir í Hafnarfirði voru
að koma þar sem krakkarnir
fengu að skreyta lítil jólatré.
Í kjölfarið komu svo foreldrar
þeirra, afar og ömmur og frændur
og frænkur til að skoða. Þetta
skapaði aðdráttarafl fyrir Jóla-
þorpið og umferðin um það varð
meiri,“ segir Bergþóra. n
Hafnfirðingar hafa
lagt mjög mikið
upp úr því að hafa Jóla-
þorpið fallegt og það er
alltaf verið að bæta í og
hafa það skemmtilegra
og betra.
Bergþóra Einarsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Það er í sjálfu sér einfalt að gera
glassúr, nóg að sulla saman vatni,
matarlit og f lórsykri þangað til
blandan er búin að ná ákjósan-
legri þykkt. En þegar skreyta á
piparkökur skipta gæði glass-
úrsins meginmáli upp á áferð og
bragðgæði. Sitt sýnist hverjum um
hvaða glassúr er hinn eini rétti
svo hér eru þrjár mismunandi
uppskriftir.
Lúxusglassúr
2 stórar eggjahvítur
2 2/3 bolli sigtaður flórsykur
Nokkrir dropar af sítrónusafa
Gel matarlitur
Eggjahvítum og 1 1/3 bolla af flór-
sykri er hrært saman með gaffli.
Afgangs flórsykurinn er þeyttur
saman við með handþeytara þar
til blandan er orðin stífþeytt.
Stundum þarf að bæta meiri
f lórsykri við til að gera blönduna
þykkari. Að lokum er nokkrum
dropum af sítrónusafa hrært
saman við og matarlit að lokum
ef vill.
Ef þér er illa við að nota hráar
eggjahvítur þá er hægt að hita
blönduna í örbylgjuofni í 30-40
sekúndur en athugið að blandan
má ekki verða heitari en 80°C.
Kælið hana síðan aftur og breiðið
rakan dúk yfir skálina á meðan.
Sprautið síðan blöndunni á pipar-
kökurnar með skreytingarpenna,
plastpoka með örlitlu gati eða
kramarhúsi.
Kóngabráð
Á ensku royal icing, er þekkt og
gagnreynd í kökuskreytingum og
til dæmis notuð á kransakökur.
Hún virkar einnig vel á piparkökur
og piparkökuhús
2 eggjahvítur
2 tsk. sítrónusafi
2 tsk. cream of tartar
330 g flórsykur
Þeytið eggjahvíturnar með
sítrónusafanum í smástund og
bætið svo flórsykrinum og cream
of tartar við og hrærið áfram. Það
þarf að nota kóngabráðina um leið
þar sem hún harðnar fljótt. Annars
þarf að setja hana í loftþétt ílát.
Það er mjög gott að setja plastfilmu
yfir ílátið sem kóngabráðin er í
þegar unnið er með hana.
Drottningarbráð
Kóngabráð með
eggjahvítudufti,
eða meringue
powder, í
stað eggja.
3 msk.
eggjahvítu-
duft
500 g flórsykur
6 msk vatn
½ tsk. sítrónusafi
Blandið vatni, sítrónusafa og
eggjahvítuduftinu saman og
þeytið vel. Sigtið flórsykurinn og
þeytið áfram þar til blandan er
orðin nokkuð stíf.
Og svo er bara að skreyta af
hjartans lyst og leika sér með
matarlit til að fá skemmtilega liti á
glassúrinn. n
UPPSKRIFTIRNAR ERU FENGNAR AF
MOMMUR.IS
Konungleg sykurbráð á kökurnar
Konungleg
sykurbráð hefur
eggin fram yfir
hina almennu
og gefur svig-
rúm til flóknari
skreytinga.
Góður glassúr er gulli betri þegar kemur að piparkökum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
54 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022