Fréttablaðið - 02.12.2022, Qupperneq 106
Bandaríska mærin Lauren
Colatrella er bakari af guðs
náð. Hún kom til Íslands
frá New Jersey og bakar
lostætar vegan-kökur sem
margar eru listaverk fyrir
Baunina á Granda en líka
þessa gómsætu og undur-
fögru jólatertu fyrir lesendur
Jólablaðsins.
thordisg@frettabladid.is
„Jólin eru í miklu dálæti en ég á
mér líka uppáhaldsárstíð, sem er
veturinn,“ segir Lauren, þar sem
hún nostrar við hvít lauf og rauð-
ar jóladoppur á tertuna fögru.
„Ef ég gæti boðið hvaða
sögufrægu persónu sem
er í kökusneið yrði það
tónskáldið Pierre
Schaeffer sem ég dái
mjög. Hann kynnti
ambient-tónlist til
sögunnar um alda-
mótin 1900 og það
er tilvalið eyrna-
konfekt á meðan
maður les bók eða
þrífur húsið. Kannski
hefði hann getað samið
fullkomna tónlist fyrir það
tilefni að setjast til borðs með
mér og til að borða góða köku
við kertaljós,“ segir Lauren hugsi.
Laumaðist í smákökur
ömmu um nætur
Þegar jólin koma nær og nær
hugsar hún heim.
„Hugurinn dvelur við mínar
uppáhaldsminningar, þegar ég
var yngri og hjálpaði til við jóla-
baksturinn og allan jólamatinn
með fjölskyldunni minni og stal
litlum bitum handa hundunum,“
segir hún hlæjandi.
Vill sjá heiminn verða vinalegri
Heims um ból og helg verða jólin
hennar Lauren með góðum vinum,
sem koma líka víðs vegar að
heiminum frá og verða fjarri fjöl-
skyldum sínum yfir hátíðirnar.
„Mín uppáhaldsjólahefð er
maturinn; að halda í ákveðið bragð
og uppskriftir sem ég nota aftur
og aftur. Uppáhaldsjólamaturinn
minn eru smákökurnar hennar
ömmu. Þær voru kúlulaga, inni-
héldu hnetur, rúsínur og súkku-
laði, og voru hjúpaðar flórsykri.
Ég var vön að laumast inn í eldhús
um miðjar nætur til að borða þær,“
segir Lauren og skellir upp úr, án
votts af samviskubiti.
„Þessi jólin langar mig í svo
margt. Mig langar að vera með
vinum mínum sem ég elska og líka
í nýtt húðflúr. Mig dreymir líka
um sólar-lyklaborð, sem hleður sig
með ljósi. Ég vil einnig sjá heiminn
breytast og að fólk leggi sig fram
um að koma betur fram við hvert
annað og verði vingjarnlegra,“
segir Lauren, um leið og hún setur
lokahönd á töfrandi jólatertuna.
„Á jólum set ég Twin Peaks-inn-
blásna jólaplötu á fóninn. Hún
er ofboðslega hátíðleg og með
miklum saxófón. Svo horfi ég á
uppáhaldsjólamyndina mína,
Rudolph frá árinu 1964. Hún var
alltaf í sjónvarpinu á jólum æsku
minnar.“ n
Vegan-jólaterta Lauren
Epli í botn
130 g olía
240 g hveiti
6 g matarsódi
6 g lyftiduft
5 g salt
5 g kanilduft
130 g sykur
130 g ljós púðursykur
27 g hörfræ
112 g heitt vatn
5 g vanilludropar
215 g rifin epli
Byrjið á að rífa
eplin. Blandið
svo saman heitu
vatni og hör-
fræjum, en þau
ættu að þykkna
á 4 mínútum.
Blandið
saman sykri,
púðursykri,
olíu og vanillu-
dropum,
og því næst
hörfræja-
blöndunni
saman við. Sigtið saman hveiti,
salti, kanil, matarsóda og lyftiduft
og bætið við blautu blönduna.
Blandið öllu saman og að lokum
rifnu eplunum með sleif. Skiptið
deiginu jafnt í tvö 20 eða 27 cm
bökunarform og bakið við 175°C í
25 til 28 mínútur. Stingið tann-
stöngli í miðju kökubotnanna til
að sjá hvort þeir séu bakaðir, en
þá á tannstöngullinn að koma út
hreinn. Kælið botnana og setjið
svo í frysti þar til þeir eru orðnir
stífir og kaldir.
Tofu cannoli-fylling
230 g tofu (það er einnig hægt að
nota vegan ricotta-ost eða kota-
sælu)
80 g vegan-jógúrt (þykk er best)
70 g flórsykur
15 g maíssterkja
30 g súkkulaðibitar
3 g kanilduft
10 g romm
Sítrónusafi
Brjótið tofu í smáa bita og setið
í blandara eða matvinnsluvél.
Bætið við jógúrt, kanil, sítrónusafa
og blandið saman þar til allt er
maukað með svolítilli áferð. Bætið
við flórsykri og maíssterkju og
blandið saman við. Setjið blönd-
una í pott, látið suðuna koma upp
en lækkið þá á meðalhita og látið
malla í fáeinar mínútur, eða þar
til blandan þykknar. Setjið í skál
og inn í ísskáp til kælingar. Þegar
þetta er kalt, hrærið rommi og
súkkulaðibitum út í. Geymið í
ísskáp.
Smjörkrem
380 g smjörlíki
270 g flórsykur
4 g vanilludropar
100 g vegan rjómi
Hrærið smjörlíkið þar til það er
létt og ljóst. Bætið flórsykri við
í smá skömmum og svo rjóma
og vanilludropum. Hrærið í 5-7
mínútur á meðalhraða. Þannig
verður kremið ljósara. Ef áferðin er
kornótt þarf að hræra lengur.
Aðferðin
Hafið allt tiltækt. Byrjið á að laga
og baka kökurnar. Útbúið fyll-
inguna á meðan botnarnir
bakast og kremið á meðan
allt kólnar.
Setjið kökubotn á disk
og notið sprautupoka til
að halda við kantana á
meðan fyllingin er sett
ofan á. Leggið hinn
botninn ofan á og
smyrjið smjörkremi
utan um og ofan á
kökuna. Skreytið
að vild. Lauren
bjó til stök lauf
og rauða punkta
til skrauts ofan
á kökuna.
Jólaterta Lauren
gleður jafnt munn
og maga grænkera
sem annarra.
Lauren er listamaður í
bakstri og kökuskreytingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sígrænu jólatrén eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám.
Við bjóðum nú upp á 5 mismunandi gerðir af
jólatrjám í mörgum stærðum, með og án LED
ljósa. Einföld samsetning og aldrei meira úrval.
Skoðaðu kostina
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Fáanlegt með ljósaseríu
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• Stálfótur fylgir
Fallegjólatré
Verið velkomin í jólaskóg
skátanna í Hraunbæ 123 eða
verslaðu beint á sigraena.is
- sem endast ár eftir ár!
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | www.sigraena.is
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Helgar kl. 12-18
84 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022