Fréttablaðið - 03.12.2022, Qupperneq 49
Framkvæmdastjóri
upplýsingatæknisviðs
Þinn árangur
Arion
Arion banki leitar að metnaðarfullum leiðtoga
í starf framkvæmdastjóra upplýsingatækni
sviðs. Viðkomandi heyrir undir bankastjóra
og á sæti í framkvæmdastjórn.
Upplýsingatæknisvið er breytingarafl í stafrænni vegferð bankans.
Undir sviðið heyra þróun, rekstur og þjónusta tækniumhverfis Arion
banka og dótturfélaga. Á sviðinu starfa um 120 starfsmenn með
framúrskarandi tækniþekkingu. Starfsfólk upplýsingatæknisviðs er
lykilþátttakandi í vöruþróun með framtíðarstefnu samstæðunnar og
skilvirkni í rekstri að leiðarljósi.
Arion banki hefur markað sér sérstöðu í stafrænni fjármálaþjónustu á
Íslandi. Framundan eru frekari fjárfestingar í stafrænni fjármálaþjón
ustu í samstarfi við fjártæknifyrirtæki og önnur tæknifyrirtæki.
Nánari upplýsingar
Helga Halldórsdóttir, forstöðumaður mannauðs Arion banka, helga.
halldorsdottir@arionbanki.is og Hilmar Garðar Hjaltason hjá vinnvinn,
hilmar@vinnvinn.is. Umsóknir óskast fylltar út á vinnvinn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2022
Ráðningarferli geta tekið mislangan tíma. Við leggjum okkur fram um
að svara öllum umsóknum um leið og ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Helstu verkefni
› Mótar stefnu og sýn í upplýsingatækni í takt við stefnu og markmið bankans.
› Tekur þátt í stefnumótun bankans og er ráðgjafi framkvæmdastjórnar í upp-
lýsingatækni og stafrænni þróun.
› Ber ábyrgð á hugbúnaðarþróun, tæknilegri vörustýringu, tækniinnviðum,
rekstri upplýsingatæknikerfa, aðgangi að gögnum og verkefnastofu.
› Tryggir að farið sé að reglum sem gilda um rekstur og notkun upplýsinga-
tæknikerfa eftirlitsskyldra aðila.
› Drífur áfram stafrænar breytingar og þróun lausna á skilvirkan og árangursrík-
an hátt og miðlar markmiðum bankans innan sviðsins.
› Byggir upp sterka liðsheild stjórnenda og sérfræðinga í upplýsingatækni.
› Tryggir þétt samstarf við aðrar einingar bankans og skilning á starfsemi þeirra,
tækifærum og áskorunum.
› Byggir upp sterk tengsl við samstarfsaðila á sviði upplýsingatækni.
Hæfni og eiginleikar
› Framúrskarandi leiðtogahæfni og drifkraftur.
› Þekking og reynsla af stjórnun í upplýsingatækni.
› Reynsla af stefnumótun og breytingastjórnun.
› Þekking á rekstri og högun upplýsingatæknikerfa.
› Góðir samskiptahæfileikar.
› Góð reynsla af rekstri og áætlanagerð.
› Framsækni og framkvæmdagleði.
› Háskólanám sem nýtist í starfi.
Hlutverk Arion banka er að vinna að markmiðum viðskiptavina, eigenda, starfsfólks og
samfélagsins alls. Við bjóðum snjallar og traustar fjármálalausnir sem skapa viðskiptavinum,
hluthöfum og samfélaginu öllu verðmæti til framtíðar. Starfsfólk bankans er fjölbreyttur hópur
fólks sem á það sameiginlegt að hafa metnað fyrir störfum sínum. Við leggjum okkur fram
við að byggja upp vinnustað þar sem kunnátta, þekking og færni fær að njóta sín. Við virðum
mannréttindi og jafnrétti í allri okkar starfsemi og leggjum kapp á að starfa í sátt við samfé-
lagið og umhverfið. Þinn árangur er það sem við stefnum að.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára