Rökkur - 01.06.1931, Síða 32
126
R ö K K U R
en verkamennirnir vildu ekki
leggja þaÖ á sig, að ganga þessa
leið. Fjöldi manna, sem aldrei hef-
ir séÖ fyrir sér, fær atvinnuleysis-
styrki. I svona tilfellum er pening-
unum, sem hinn vinnandi lýður
landsins verður að greiða í ríkis-
sjóð, varið til þess að ala letingja
og dugleysingja í iðjuleysi.
Chaulmoogra
heitir trjátegund, sem vex í Asíu,
og eru unnin úr henni efni., sem
eru notuð vi'S framleiSslu lyfja viS
holdsveiki. Tilraunir hafa léitt í
ljós, að trjátegund þessi dafnar vel
á Porto Rico. Er ráðgert að rækta
þar trjátegund þessa í stórum stíl,
því mikið er enn óunnið til þess
að uppræta holdsveikina í Vestur-
álfu.
Nýr landstjóri í Ástralíu.
Samkvæmt tillögum J. H. Scull-
in, forsætisráöherra Ástralíu, hefir
George V. Bretakonungur útnefnt
Sir Isaac Alfred Isaacs, hæstarétt-
ardómara í Ástralíu, landstjóra þar
í landi. Útnefningin hefir tvöfalda
þýðingu, í fyrsta lagi er Sir Isaac
fyrsti Ástralíumaðurinn sem er út-
nefndur landstjóri í Ástralíu, en
hann er einnig fyrsti landstjóri
breskrar sjálfstjórnarnýlendu, sem
ekki er útnefndur beint af konungi.
Kröfurnar um að landstjórar væri
valdir úr nýlendunum sjálfum
komu fyrst fram á bresku alríkis-
ráðstefnunni 1926 og eins á al-
ríkisstefnunni, sem haldin var í
haust.
Sir Isaac er 75 ára gamall. Hann
varð hæstaréttarforseti í apríl s.l.,.
en hafði verið hæstaréttardómari
frá árinu 1906. Sir Isaac er fædd-
ur í Melbourne.
Andbanningafélag í U. S. A.
Nýtt andbanningafélag var
stofnað í haust í Bandaríkjunum.
Hefir félagið deildir víðsvegar um
landiö og voru stofnmeðlimir fé-
lagsins taldir vera 3 miljónir.
Einn forgöngumannanna er John
Sullivan, forseti verkamannasam-
bands New York (New York
Federation of Labour). Kveður
hann félagið munu leggja fram
ákveðnar tillögur um bannlaga-
breytingar innan skamms. Fyrst
um sinn verður unniS aö því að
safna öllum andbanningum undir
merki félagsins.
Bauðsföll af völdum bifreiðaslysa
fara hvarvetna vaxandi. Skýrslur
sýna, að börnum, sem eru aS leik-
um á götum úti, er sérstaklega
hætt, og er unnið af kappi aS því
í ýmsum borgum, aS koma upp
nýjum og stærri Ieikvöllum fyrir
börn. Árin 1924—1928 biSu 1000
börn bana af völdum bifreiöa-
slysa í London, en áriS 1929 346
börn á aldrinum 1—5 ára og 639
börn á aldrinum 5—10 ára.