Rökkur - 01.06.1931, Page 48
ROKKUR
142
eftirtekt um heim allan. Menn
hafa undrast yfir því, að neyð-
arástand sknli nú vera ríkjandi
í þessu Gósen-landi, sem svo
mikið hefir verið gumað af,
þar sem allir áttu að liafa há
laun og nóg af öllu. En Banda-
rikjamenn gumuðu sjálfir mest
af því, að þar í landi gæti
verkamenn veitt sér ótal hluti,
sem verkamenn i öðrum lönd-
um gæti ekki veitt sér. Að vísu
var mikið til í þessu. En hins-
vegar verður að geta þess, að
fjöldi manna lifði langt um efni
fram. Ef menn gátu ekki eign-
ast hlutina með öðru móti, þá
keyptu menn þá með afborgun-
um, og var farið alt of langt í
því efni, fjöldi manna var i
rauninni búinn að eyða launum
sínum fyrirfram, á slíku var
látlaust áframhald, því ])að var
orðin lenska að kaupa altaf
nýtt og nýtt, t. d. þegar menn
höfðu eignast bifreið með af-
borgunum var byrjað á nýjan
leik, „gamla“ bifreiðin seld og
nýtt „moder‘ keypt. En svona
var það í mörgu öðru, þótt þetta
sé nefnt til dæmis. Eyðslustefn-
an var orðin svo víðtæk, að
jafnvel fjöldi fólks, sem hefði
átt að geta þolað langt atvinnu-
leysi, ef það hefði farið skyn-
samlega með fé sitt, stóð uppi
slvpt og snautt. — í desember
voru í New York borg einni
nálega 60,000 fjölskyldfeður at-
vinnulausir og aukningin ca.
500 á viku.
Þrátt fyrir alt, sem gert hefir
verið til að raða bót á atvinnu-
leysinu og' neyðinni, hefir mið-
að aftur á bak, en ekki áfram.
En jafnvel Bandaríkjamenn
eru að komast á þá skoðun, að
framtíðarinnar vegna verði af-
farasælast að lifa einfaldara
hfi en lenska hefir verið vestra
á undanförnum árum, því þótt
orsakir kreppunnar séu víð-
tækari en svo, að þessu verði
um kent, þá er eyðslustefnunni
hægt um að kenna, hve mikill
fjöldi manna var illa undir
vondu tímana búinn.
Indlandsinálaráðstefnan.
—o—
VI.
Indlandsráðstefnunni lauk
mánudaginn 19. jan. Nefnd sú,
sem liafði til meðferðar samn-
ing stjórnarskráruppkasts fyr-
ir Indland gerði grein fyrir
störfum sínum. Ennfremur var
samþykt á þessum fundi, að
„gerðar verði ráðstafanir til
þess að haldið verði áfram án
tafa því starfi, sem hafið var
með ráðstefnunni og unnið á
henni“.
En hvernig þessu framhalds-