Rökkur - 01.06.1931, Side 73

Rökkur - 01.06.1931, Side 73
R O K Iv U R 167 inn metorðagjarn mjög. Og hvernig kom hann fram við þig?“ „Hann var siður en svo harð- neskjulegur, næstum því mildur.“ „Sagðirðu honum alla söguna?“ „Já, eg gerði það.“ „Og var nokkur sjáanleg breyting á honum á meðan á yfirheyrslunni stóð?“ „Já, honum virtist vissulega verða mikið um, þegar hann las bréfið, sem leiddi til þess, að eg var fluttur á fund hans. Hann virtist vera á- hyggjufullur yfir hættunni, sem eg var í.“ „Sem þú varst í?“ „Já.“ „Ertu viss um, að hann fyndi til samúðar með þér vegna þess, að þú hafðir lent i þessu?“ „Vissulega; hann sannaði það sjálfur áþreifanlega.“ „Hvernig þá?“ „Hann hrendi eina sönnunargagn- ið — eða það, sem hægt var að nota gegn mér.“ „Áttu við ákærubréfið nafnlausa?“ „Nei, nei, bréfið, sem mér var fal- ið að fara með til Parísar.“ „Ertu viss um, að hann brendi því?“ „Hann gerði það fyrir augunum á mér.“ „Þá horfir málunum alt öðru vísi við. Maðurinn gæti verið meiri þorp- ari en okkur rennir grun í.“ „Það fer hrollur um mig, er eg heyri }>ig mæla á þessa leið. Er eðli sumra manna þá krókódila og tíg- risdýra eðli?“ „Sumir menn, vinur minn, eru hættulegri en grimmustu tígrisdýr og krókódílar.“ „Við skulum halda áfram samræð- unni um konungsfulltrúann.“ „Já, við skulum gera það. Þú seg- ir, að hann hafi brent bréfinu í við- urvist þinni?“ „Já — og hann sagði um leið: Aðalásökunin er í þessu bréfi — og þú sérð, — eg eyði því.“ „Þessi framkoma virðist göfug- menni samboðin, — en mig grunar hið versta." „Hvers vegna?“ „Við komurn að þvi síðar. Til hvers var þetta bréf stílað?“ „Til M. Noirtier, no. 11 Rue Coq- Héron, Paris.“ „Seg mér nú,“ sagði ábótinn, „gæti þér dottið í hug nokkur ástæða fyr- ir því, að konungsfulltrúinn vildi eyða þessu bréfi?“ „Það er ekki óhugsandi, að svo liafi verið, því hann lét mig heita því margsinnis, að minnast aldrei á þetta bréf við nokkurn mann, og hann lét mig sverja að nefna aldrei nafn þess manns, sem bréfið var stíl- að til.“ „Noirtier,“ endurtók ábótinn hugsi. „Noirtier! Eg þekti mann með því nafni við hirð drotningarinnar af Etruriu. Hann liafði verið Girondisti í stjórnarbyltingunni. — Hvað hét konungsfulltrúinn?“ „Villefort.“ Ábótinn rak upp kaldranalegan hlátur, en Dantés horfði á hann undrandi og skelfdur, „Hvað gengur að þér?“ spurði hann loks. „Sérðu þessa ljósrák þarna?“ „Já, eg sé hana.“ „Vinur minn, eg sé eins glöggt hvernig öllu þessu er varið og þú sérð sólargeislann þarna. Vesalings ungi maður. Og þú sagðir mér, að þessi lagafulltrúi hefði látið í ljós mikla samúð í þinn garð?“

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.