Bændablaðið - 01.12.2022, Page 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
eru margir sjóðir farnir að fjárfesta
í loftslagsverkefnum af því að
þeir hafa trú á að verð muni fara
hækkandi ef ríki gera lagalega kröfu
um að fyrirtæki vegi á móti sinni
losun. „Þetta er ný hrávara sem er að
verða til,“ segir Guðmundur.
Hann segir verkefnin sem eru í
gangi á Íslandi sannarlega mikilvæg,
en hvergi sé hægt að fullyrða að
þau séu farin að framleiða fullgildar
einingar.
Skógur sem er gróðursettur núna er
allavega 50 ár að binda allt það kolefni
sem af honum er vænst. Fyrirtæki
sem styðja við skógrækt geta því
ekki, samkvæmt tækniforskriftinni,
haldið því fram að þau séu búin að
kolefnisjafna sig en geta sagst eiga
kolefniseiningar í bið sem virkjast
ekki fyrr en eftir ákveðinn árafjölda
þegar árangur er orðinn raunverulegur,
staðfestur og skráður.
Vottaðar einingar
forsenda fjárfestingar
Gunnlaugur Guðjónsson, sviðsstjóri
rekstrarsviðs hjá Skógræktinni, segir
að undanfarin þrjú ár hafi stofnunin
unnið samkvæmt kröfusettinu
Skógarkolefni sem er gæðastaðall
fyrir viðurkennt ferli vottunar á
bindingu kolefnis með nýskógrækt.
Kröfusettið nái hins vegar aðeins til
kolefnisbindingar með nýskógrækt
en tæknisforskriftin nær almennt yfir
bæði losun og bindingu og styður því
vel við þau verkefni sem eru vottuð
undir Skógarkolefni. Tækniforskriftin
tekur á losunarhliðinni sem er afar
mikilvægt til að skapa eftirspurn eftir
verkefnum í kolefnisbindingu.
Hingað til hafa verið í gangi
verkefni hjá ýmsum aðilum sem
miða að kolefnisbindingu og segir
Gunnlaugur þau góð og gild. Hann
segir hins vegar nauðsynlegt, ef
fyrirtæki ætla að verja stórum
fjárhæðum í loftslagsverkefni, að
hægt sé að votta bindinguna til að
fjárfestarnir fái eitthvað fyrir sinn
snúð. Hann nefnir dæmi um 100
milljón króna skógræktarverkefni á
Fjarðarhorni í Hrútafirði sem Festi,
íslenskt fjárfestingafélag, stendur
á bak við. Upp úr því koma 80-90
þúsund vottaðar kolefniseiningar sem
er hægt að bókfæra til eignar og þá
ýmist selja eða nota á móti losun.
Gunnlaugur tekur fram að
skógrækt er langtímaverkefni og
þegar kemur að kolefnisbúskapnum
í heiminum þá skipta tíu ár til eða
frá ekki höfuðmáli. „Það skiptir
máli að þú hafir tekið ákvörðun um
að fara í verkefni sem mun ná fram
ákveðnum ávinningi á 50 árum. Þó
svo að við myndum ná því að verða
kolefnishlutlaus í dag þá myndi það
ekki breyta því að það er uppsöfnuð
þörf í andrúmsloftinu sem þarf að
binda niður.“
Verð íslenskra eininga
í hærri mörkum
Aðspurður um verð kolefniseininga
segir Gunnlaugur erfitt að fullyrða
um það. Þetta er á valkvæðum
kolefnismarkaði og er meðalverðið
í heiminum er á bilinu 40-50
dollarar. Það er hægt að fá mjög
ódýrar einingar í þriðja heiminum,
en öryggi þeirra er ekki alltaf
tryggt. Íslenskar einingar verða
líklega í hærri mörkum áðurnefnds
meðalverðs.
Íslenskt jarðnæði
hlutfallslega ódýrt
Skógræktin hefur átt fundi með
erlendum aðilum sem hafa áhuga á
að setja í gang loftslagsverkefni hér
á landi. Einu helstu hvatarnir á bak
við það er sá að íslenskar jarðir eru
hlutfallslega ódýrar og að allt land
í Evrópu er orðið umsetið. Þegar
opnaðist fyrir fjárfestingar í Austur-
Evrópu hafi verð á úthaga og öðru
jaðarlandi þar sem skógrækt fer fram
á farið úr 800 evrum á hektarann yfir
í 3.500 evrur.
Gunnlaugur segir að miklir
möguleikar fylgi því að rækta
skóg á jaðarlandi. Með því fæst
kolefnisbinding sem hægt er að selja
og timbur sem fellur til við grisjun.
Ef skógur er ræktaður í 50-60 ár á
rýru landi og felldur að því loknu er
framleiðni landsins orðin mun meiri
en áður.
Tekjuöflun ekki í sjónmáli
Bændablaðið setti sig í samband við
Ívar Örn Þrastarson, deildarstjóra
hjá Festi, sem stendur á bak við
áðurnefnt loftslagsverkefni á
Fjarðarhorni. Aðspurður hvort
samsteypan sæi fram á að græða
eitthvað á gróðursetningunni
svaraði hann skriflega: „Hugsanleg
tekjuöflun af verkefninu er ekki
í sjónmáli eða fyrirséð. Þegar
mælingar munu staðfesta að
kolefnisbinding hafi átt sér stað
í þessu verkefni, þá getum við
minnkað kaup á kolefniseiningum
frá öðrum en samsteypunni. Við
gerum ráð fyrir að gróðursetningum
í þessu verkefni ljúki vorið 2024
og að fyrstu mælingar á bindingu
muni eiga sér stað fimm til tíu árum
síðar. Þegar binding hefur svo verið
staðfest mun hún fyrst verða bókfærð
inn í kolefnisbókhald félagsins.“
Neytendur geta veitt aðhald
Einar Bárðarson, framkvæmda stjóri
Votlendissjóðs, tók þátt í mótun
tækniforskriftarinnar. Hann segir
að hér séu komnar þær leikreglur
sem markaðurinn hefur verið að
kalla eftir og þetta sé nauðsynlegt
svo viðskipti með kolefniseiningar
njóti trausts. Nú er búið að skilgreina
hvaða forsendur þurfi að vera til
staðar til að aðilar á markaðnum
geti auglýst kolefnishlutleysi.
Hingað til hefur Votlendissjóður
selt kolefniseiningar, en tekið
sérstaklega fram að ekki sé verið að
kaupa kolefnishlutleysi. Hann segir
að þetta muni ekki breyta því hvernig
votlendi er endurheimt, heldur
ferlunum í kringum utanumhaldið
og eftirlitið í kringum framleiðslu
kolefniseininga.
Tækniforskriftin hefur ekki
lagalegt gildi, en gefur möguleikann
á að samræma tungutak og
viðurkenndar leikreglur. Þetta gefur
aðilum á markaði tækifæri til að
skilja hvað felst í kolefniseiningum
og kolefnisjöfnun og neytendur geta
veitt aðhald ef þess þarf.
„Ég held að með alþjóðlegum
vottunum, skýrum leikreglum, og að
hægt sé að selja kolefniseiningar með
miklu meiri kröfum en hefur verið gert,
opnast tækifæri fyrir Votlendissjóð og
aðra að gera úr þessu tekjulind fyrir
landeigendur í mjög náinni framtíð,“
segir Einar.
Mun auka gagnsæi
Yggdrasil Carbon er fyrirtæki
sem vinnur að þróun sjálfbærra
loftslagsverkefna í náttúru Íslands sem
gefa vottaðar kolefniseiningar – þá
helst skógrækt. Þau vinna í samstarfi
við landeigendur og leiða verkefnin
frá upphafi til enda. Björgvin Stefán
Pétursson, framkvæmdastjóri
Yggdrasil Carbon, segir sitt fyrirtæki
vinna eftir nýju tækniforskriftinni í
sínum verkefnum.
Sérstakt kappsmál hjá Yggdrasil er
að semja við núverandi eigendur jarða
með það að markmiði að styðja við
byggð og skapa atvinnu fyrir fólkið
á svæðinu. Björgvin útilokar þó ekki
að með tíð og tíma komi aðilar sem
kaupa jarðir gagngert til að fara í
skógræktarverkefni.
„Markaðurinn mun færa sig í að
kaupa vottaðar kolefniseiningar,“ segir
Björgvin, aðspurður um hverju nýja
tækniforskriftin muni breyta. Nú muni
verða aukið gagnsæi í viðskiptum með
einingarnar. Einnig vonast hann til að
breyting verði á því hvort fyrirtæki
haldi fram kolefnishlutleysi eða
kolefnisjöfnun og öll hugtökin á þessu
sviði verði skýrari.
Mjög stutt í fyrstu söluna
Þegar Bændablaðið tók Björgvin
tali þá var vinna í gangi hjá óháðri
vottunarstofu að votta væntar
kolefniseiningar fyrstu verkefna
Yggdrasil. Hann segir að þeirri vinnu
verði lokið í desember og í kjölfarið
fari vottaðar einingar í bið í söluferli
– sem verður ein af fyrstu sölunum á
landinu, ef ekki sú fyrsta.
„Vottaðar kolefniseiningar eru
eina leiðin áfram,“ segir Björgvin
aðspurður um góð lokaorð.
Orðskýringar *
Kolefniseining er fjárhagsleg eining sem felur í sér sönnun þess að losun á
einu tonni koldíoxíðsígilda út í andrúmsloftið hafi sparast miðað við óbreytt
ástand. Kaupandi slíkrar einingar (vottorðs) getur notað hana til að sýna fram
á að hann hafi kolefnisjafnað eitt tonn af eigin losun gróðurhúsalofttegunda.
Kolefnishlutleysi lýsir ástandi þar sem jafnvægi hefur náðst milli hraða losunar
og bindingar af mannavöldum og nettólosun er því núll. Kolefnishlutleysi lýsir
lokamarkmiði, ekki leiðinni að því marki.
Kolefnisbinding er binding kolefnis sem felur í sér að lofttegundin koltvíoxíð
(CO2) er fjarlægð úr andrúmslofti með ljóstillífun plantna eða fönguð úr
andrúmslofti eða staðbundnum útblæstri með efnafræðilegum aðferðum sem
umbreytist í lífrænt efni í jarðvegi, sem viður eða kolefnaríkar steindir í berglögum.
Kolefnisjöfnun vísar alla jafna til þess þegar bætt er fyrir losun
gróðurhúsalofttegunda án lagaskyldu, þ.e. í öðrum tilgangi en að uppfylla
lagalegar kröfur um skil á losunarheimildum. Slíka kolefnisjöfnun má kalla
valkvæða kolefnisjöfnun.
Kolefnisspor er sú heildarlosun gróðurhúsalofttegunda sem einstaklingur,
viðburður, fyrirtæki eða framleiðsla tiltekinnar vöru veldur á einu ári.
Staðlar eru alla jafna opinber en valfrjáls verkfæri sem hagaðilar búa til og
sammælast um að nota vegna ávinnings af því að nota verkfæri sem búin hafa
verið til af bestu sérfræðingum með samvinnu og sammæli um niðurstöður. **
* Sótt í skjalið Vinnustofusamþykkt – Ábyrg kolefnisjöfnun á vef Staðlaráðs Íslands
** Sótt beint á vef Staðlaráðs
Ein kolefniseining jafngildir einu tonni af gróðurhúsalofttegundum sem
hefur verið kolefnisjöfnuð. Mynd / ÁL
Sérvaldir íslenskir
ostar og meðlæti
Veldu milli átta mismunandi ostakarfa
og bættu við annarri matvöru, víni
eða g jafavöru.
Sérframleiddur MS súkkulaðigráðaostur
er í völdum g jafakörfum.
Frábær jólag jöf til viðskiptavina
og starfsfólks.
Kíktu á ms.is og skoðaðu úrvalið
- einfalt og fljótlegt.
Gómsætar jólagjafir