Bændablaðið - 01.12.2022, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Á FAGLEGUM NÓTUM
Kynbótasýningar 2022:
Hæst dæmdu hross ársins
Sýningar voru haldnar á 6 stöðum
um allt land, 11 vorsýningar,
1 miðsumarssýning og 3
síðsumarssýningar.
Á þessum sýningum voru felldir
1.300 dómar, fullnaðardómar
voru 961, sköpulagsdómar 173 og
hæfileikadómar 164. Hápunktur
sýningarhaldsins var síðan LM2022
en þar áttu 176 hross þátttökurétt.
Efstu þrjár hryssur
í hverjum flokki
Alls komu 610 hryssur til
fullnaðardóms á árinu en dómar voru
vissulega mun fleiri enda þó nokkuð
um endursýningar.
Sýndar voru 59 fjögurra vetra
hryssur en það er um 7% sýndra
hrossa.
Þriðju hæstu aðaleinkunn ársins í
flokki 4 vetra hryssna hlaut Herdís frá
Rauðalæk, 8,33. Ræktandi Herdísar
er Pabbastrákur ehf. en eigandi er
Takthestar ehf. Herdís er dóttir Arions
frá Eystra-Fróðholti og Logadísar frá
Syðra-Garðshorni. Herdís hlaut 8,43
fyrir sköpulag, hún er framfalleg og
fótahá með 8,5 í einkunn fyrir háls,
herðar og bóga, bak og lend, samræmi
og fótagerð. Hún er fjölhæf á gangi
og hlaut m.a. 9,0 fyrir samstarfsvilja
enda viljug og þjál.
Næsthæstu aðaleinkunn ársins
hlaut Þrá frá Lækjamóti, en hún
hlaut 8,33 eins og Herdís en á milli
skilja nokkrir aukastafir. Ræktendur
og eigendur eru Elín Rannveig
Líndal og Þórir Ísólfsson. Þrá er
undan Þráni frá Flagbjarnarholti og
Rán frá Lækjamóti. Þrá hlaut 8,48
fyrir sköpulag enda fríð og stæðileg
hryssa m.a. með 9,0 fyrir samræmi.
Þrá er fjölhæf alhliðahryssa sem
hlaut 8,5 fyrir tölt, hægt stökk, fet
og samstarfsvilja. Þrá varð í öðru
sæti á LM2022.
Hæstu aðaleinkunn ársins,
8,39 hlaut Vala frá Garðshorni á
Þelamörk. Ræktendur hennar eru
Agnar Þór Magnússon og Birna
Tryggvadóttir Thorlacius, eigendur
eru Sporthestar ehf. og Svarthöfði-
Hrossarækt ehf. Vala er undan
Þráni frá Flagbjarnarholti og
heiðursverðlauna hryssunni Eldingu
frá Lambanesi. Gaman er að geta
þess að systir Völu, Afródíta stóð
einmitt efst í flokki fjögurra vetra
hryssna í fyrra. Vala er fríð og
glæsileg hryssa með 9,0 fyrir höfuð
og samræmi. Vala er snillingur á
skeiði en hún hlaut 9,5 fyrir skeið
sem er magnað af 4 vetra hrossi. Hún
stóð efst í sínum flokki á LM2022.
Hryssur 5 vetra
Í fimm vetra flokki hryssna voru
sýndar 159 hryssur og voru þær því
17% sýndra hrossa.
Díva frá Kvíarhóli hlaut þriðju
hæstu aðaleinkunn ársins í þessum
flokki, 8,46. Ræktandi hennar er
Ingólfur Jónsson en eigendur eru
Egger-Meier Anja og Kronshof GbR.
Díva er undan Skýr frá Skálakoti
og Birtu frá Mið-Fossum. Díva er
glæsileg hryssa á velli með 8,51 fyrir
sköpulag en hún er með 8,5 fyrir
flesta sköpulagsþætti og 9,5 fyrir
prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hún
8,42, en þar er hún með 9,0 fyrir tölt,
brokk, hægt stökk, samstarfsvilja og
fegurð í reið.
Önnur í þessum flokki var Rakel
frá Hólaborg, en hún hlaut 8,51 í
aðaleinkunn. Ræktandi og eigandi
hennar er Kristina Forsberg. Rakel
er undan Hreyfli frá Vorsabæ II og
heiðursverðlauna hryssunni Rán frá
Þorkelshóli 2. Rakel er stórglæsileg
hryssa á velli enda með 8,70 fyrir
sköpulag, þar ber hæst 9,5 fyrir
fótagerð og 9,0 fyrir háls, herðar
og bóga og samræmi. Rakel er
skrefmikil og rúmur alhliðagæðingur
með 8,5 fyrir tölt, brokk, skeið,
samstarfsvilja og fegurð í reið. Rakel
var í öðru sæti á LM2022.
Hæstu aðaleinkunn ársins í
þessum flokki hlaut Hildur frá
Fákshólum, 8,58. Ræktandi hennar
er Jakob Svavar Sigurðsson en
eigandi er Gut Birkholz GbR. Hildur
er undan Ölni frá Akranesi og Gnýpu
frá Leirulæk. Hildur er ákaflega fríð
og stórglæsileg alhliðahryssa enda
hlaut hún 8,67 fyrir sköpulag og 8,53
fyrir hæfileika. Í sköpulagi fékk hún
fjórar níur, fyrir höfuð, háls, herðar
og bóga, bak og lend og samræmi. Í
hæfileikum ber hæst 9,0 fyrir skeið
og samstarfsvilja, 8,5 fyrir tölt,
brokk og fegurð í reið. Hildur stóð
efst í sínum flokki á LM 2022.
Hryssur 6 vetra
Alls voru sýndar 194 hryssur í
flokki 6 vetra en það mun vera um
22% sýndra hrossa.
Þriðju hæstu aðaleinkunn
ársins í þessum flokki fékk Dögun
frá Austurási, en hún hlaut í
aðaleinkunn 8,64. Ræktendur
hennar eru Haukur Baldvinsson
og Ragnhildur Loftsdóttir en
eigandi hennar er Austurás hestar
ehf. Dögun er undan Hákoni frá
Ragnheiðarstöðum og Ör frá Strönd
II. Dögun hlaut fyrir sköpulag 8,61
í einkunn enda fönguleg hryssa með
9,0 fyrir háls, herðar og bóga og
samræmi. Fyrir hæfileika fékk hún
í aðaleinkunn 8,65, þar ber hæst 9,0
fyrir tölt, samstarfsvilja og fet.
Næsthæstu aðaleinkunn
ársins 8,76 fékk Salka frá Efri-
Brú. Ræktandi hennar er Óli
Fjalar Böðvarsson en eigandi er
Stapabyggð ehf. Salka er undan
Vökul frá Efri-Brú og Vöku frá Efri-
Brú. Salka er glæsileg alhliðahryssa
með 8,69 fyrir sköpulag og 8,79
fyrir hæfileika. Hæst ber 9,5 fyrir
samstarfsvilja en hún hlaut einnig
9,0 fyrir háls, herðar og bóga,
samræmi, skeið, hægt stökk og
fegurð í reið.
Hæstu aðaleinkunn ársins í
þessum flokki, 8,77 hlaut Díva frá
Austurási. Ræktendur hennar eru
Haukur Baldvinsson og Ragnhildur
Loftsdóttir en eigandi er Austurás
hestar ehf. Díva er undan Konsert
frá Hofi og Prinsessu frá Litla-
Dunhaga I. Díva er stórglæsileg
alhliðahryssa með 8,75 fyrir
sköpulag og 8,78 fyrir hæfileika.
Þar ber hæst 9,5 fyrir háls, herðar
og bóga, fótagerð og fegurð í reið en
hún hlaut einnig 9,0 fyrir samræmi,
tölt, brokk og samstarfsvilja. Díva
var í þriðja sæti í sínum flokki á
LM2022.
Hryssur 7 vetra og eldri
Í flokki 7 vetra og eldri hryssna voru
sýndar 200 hryssur eða um 22%
sýndra hrossa.
Lýdía frá Eystri-Hól hlaut þriðju
hæstu einkunn ársins í þessum
flokki eða 8,67. Ræktandi hennar
er Hestar ehf en eigendur eru eru
Egger-Meier Anja og Kronshof
GbR. Lýdía er undan Lexus frá
Vatnsleysu og Oktavíu frá Feti.
Lýdía er mikið fegurðardjásn,
ákaflega framhá og léttbyggð. Hún
hlaut fyrir sköpulag 8,81, ber þar
hæst 9,5 fyrir háls, herðar og bóga
og samræmi. Fyrir hæfileika fékk
hún 8,59, er þó skeiðlaus, þar ber
hæst 10 fyrir samstarfsvilja og 9,5
fyrir tölt, brokk og fegurð í reið,
mögnuð hryssa, enda hafnaði hún
í öðru sæti á LM2022.
Næsthæstu aðaleinkunn ársins
hlaut Þyrnirós frá Rauðalæk en
hún hlaut 8,67 eins og Lýdía en
á milli skilja nokkrir aukastafir.
Ræktandi hennar er Pabbastrákur
ehf en eigandi er Takthestar
ehf. Þyrnirós er undan Sjóði frá
Kirkjubæ og Logadís frá Syðra-
Garðshorni. Logadís á því tvær
hryssur sem komast hér á blað með
efstu hryssum ársins en Herdís frá
Rauðalæk er einnig undan henni.
Þyrnirós er glæsileg alhliðahryssa
með 8,76 fyrir sköpulag og 8,62
fyrir hæfileika. Þar ber hæst 9,0
fyrir háls, herðar og bóga, bak og
lend, samræmi og prúðleika. Fyrir
hæfileika hlaut hún 9,0 fyrir skeið,
samstarfsvilja og fegurð í reið.
Þyrnirós varð í fjórða sæti í sínum
flokki á LM2022.
Hæstu aðaleinkunn ársins í
þessum flokki, 8,87 hlaut Álfamær
frá Prestsbæ. Ræktendur hennar
eru Inga og Ingar Jensen en
eigendur eru Eggert-Meier Anja
og Árni Björn Pálsson. Álfamær
er undan Spuna frá Vesturkoti og
heiðursverðlauna hryssunni Þóru
frá Prestsbæ. Álfamær er vel gerð
hryssa með 8,59 fyrir sköpulag en
hún er með 9,0 og 8,5 fyrir flesta
þætti sköpulags. Hún hlaut 9,02
fyrir hæfileika enda skrefmikil,
skrokkmjúk og flugviljugur
alhliðagæðingur. Fyrir skeið hlaut
hún 10,0 enda snillingur á skeiði.
Álfamær stóð efst í sínum flokki
á LM2022.
Efstu þrír stóðhestar
í hverjum aldursflokki
Alls komu 289 stóðhestar til dóms
á árinu. Í flokki fjögurra vetra
stóðhesta voru sýndir 61 hestur eða
um 7% sýndra hrossa.
Þriðju hæstu einkunn ársins hlaut
Agnar frá Margrétarhofi. Ræktandi
hans og eigandi er Margrétarhof.
Agnar er undan Ölni frá Akranesi og
Garúnu frá Garðshorni á Þelamörk
sem var undan Dofra frá Steinnesi. Á
vorsýningu á Hólum fór Agnar í 8,37
í aðaleinkunn, hann fékk 8,46 fyrir
sköpulag og 8,32 fyrir hæfileika.
Hæst ber 9,0 fyrir tölt, honum er
einatt lýst sem skrefmiklum og
lyftingargóðum.
Næsthæstur fjögurra vetra
stóðhesta var Ambassador frá
Bræðraá sem er undan Skaganum frá
Skipaskaga og Hugadótturinni Tign
frá Úlfsstöðum. Ræktandi hans og
eigandi er Pétur Vopni Sigurðsson.
Ambassador er alhliðagengur
skrefmikill hestur og hlaut hann m.a.
9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja.
Með hæstu aðaleinkunn eða
8,42 var Valíant frá Garðshorni á
Þelamörk undan Adrían frá sama
bæ og Kolfinnsdótturinni Mánadís
frá Hríshóli 1. Ræktendur hans er
Agnar Þór Magnússon og Birna
Tryggvadóttir Thorlacius en eigendur
eru K.Ó. Kristjánsson og Daníel
Jónsson. Valíant er framfallegur og
léttbyggður með 8,61 í sköpulagi þar
af 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og
samræmi. Valíant var í efsta sæti í
sínum flokki á Landsmótinu.
Stóðhestar 5 vetra
Í flokki fimm vetra stóðhesta komu
89 hestar í fullnaðardóm eða 10%
sýndra hrossa.
Þriðju hæstu einkunn ársins
í þessum flokki hlaut Drangur
frá Steinnesi, undan Draupni frá
Stuðlum og Ólgu frá Steinnesi, með
8,44 í aðaleinkunn. Ræktandi hans
og eigandi er Magnús Jósefsson.
Drangur er skrefmikill og hágengur
myndargripur, með 8,73 fyrir
sköpulag. Hann er með 9,0 fyrir
samræmi, fótagerð og hófa. Fyrir
hæfileika hlaut hann 8,28, með 8,5
fyrir flesta þætti kosta.
Næsthæstu einkunn ársins hlaut
Geisli frá Árbæ undan Ölni frá
Akranesi og Gleði frá Árbæ sem
er undan Vökli frá Árbæ. Hann er
ræktaður af Vigdísi Þórarinsdóttur
og Gunnari Andrési Jóhannssyni
og í eigu G. Jóhannsson ehf. Í
aðaleinkunn á Landsmótinu hlaut
Geisli 8,46 þar sem hann var í öðru
sæti í flokki fimm vetra stóðhesta.
Geisli er stór og afar framfallegur,
léttbyggður og jafnvægisgóður
hestur. Bak og lend er einstaklega
gott en fyrir það hlaut hann 9,5, fyrir
háls, herðar og bóga og samræmi
hlaut hann 9,0. Geisli er skrefmikill
hestur og fyrir flesta þætti kosta hlaut
hann 8,5.
Vala frá Garðshorni á Þelamörk. Knapi er Agnar Þór Magnússon, sem einnig
er ræktandi hennar ásamt Birnu Tryggvadóttur Thorlacius.
Myndir / Óðinn Örn - Eiðfaxi
Díva frá Austurási, knapi Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir. Álfamær frá Prestsbæ, knapi Árni Björn Pálsson. Hildur frá Fákshólum hlaut hæstu einkunn 5 vetra hryssa.
Elsa Albertsdóttir og
Halla Eygló Sveinsdóttir
elsa@rml.is &
halla@rml.is