Bændablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Margir hafa óvart sett ullarpeysu
í þvottavél með öðrum þvotti og
fengið hana aftur úr vélinni nánast
eins og þófinn vettling. Þetta getur
verið mikill skaði ef um er að ræða
uppáhaldspeysu.
Fólk lærir að til
að ullarföt hlaupi
ekki þarf að þvo
þau varlega, helst í
höndum, og vinda
þau og þurrka
eftir kúnstarinnar
reglum. Þetta þykir
sumum vandasamt
og tímafrekt og
fagna því að geta nú
fengið prjónagarn
sem hleypur ekki. Í verslunum má
sjá mikinn fjölbreytileika garns, liti
og gerðir, og á merkimiðum þess
stendur að garnið sé 100% ull og sé
auk þess „superwash“. Það þýðir að
flík úr garninu breytist ekki í þvotti
og megi því þvo hana með öðrum
þvotti. Eðlilega sýnist mörgum að
þetta garn sé heppilegt í barnapeysur
sem oft þurfi að þvo.
Gerð og eiginleikar ullar
Fyrir rúmlega fjörutíu árum var
ég í báti sem hvolfdi í fjöruborði
eyðieyjar. Allt fór vel og við gátum
kraflað okkur í land, hundblaut
inn að skinni. Við þurftum að bíða
í nokkurn tíma eftir hjálp. Tveir
í hópnum eru mér sérstaklega
minnisstæðir. Sá elsti var í lopapeysu
yst fata. Hann dreif sig strax úr öllu
að ofan, vatt lopapeysuna, fór í hana
næst sér og blautan stakk þar utan
yfir. Hann komst vel af. Töffarinn
í hópnum var bara í gallabuxum
og öðrum bómullarfötum, hann
var mjög kaldur og skjálfandi
þegar hjálpin barst. Sjálf var ég
hin hressasta, í ullarnærfötum og
lopapeysu og dundaði mér við að
ganga um og skoða fugla á meðan
við biðum.
Fróðlegt er að skoða ullarhár í
smásjá til að sjá gerð þeirra. (Sjá
mynd 1.) Yfirborð háranna er þakið
flögum, þær liggja frá hárrótinni
og skarast. Flögurnar hrinda frá sér
vatni svo að það rennur greiðlega
niður hárin. Yfirborð ullarhára
hleypir í gegnum sig vatnsgufu og
innri hluti þeirra er svo vatnsdrægur
að vatn getur verið um 30% af þyngd
ullar án þess að hún virðist blaut
við snertingu, því að vætan helst
innan við yfirborðsflögurnar. Þessi
bygging ullarháranna og eiginleikar
orsaka þau einkenni sem ull er þekkt
fyrir, kindur þola vel rigningu og
þorna fljótt ef þær blotna, raki og
sviti flyst auðveldlega frá húðinni í
gegnum ullarflíkur og þær halda á
okkur hita þótt þær séu blautar.
Flögurnar á ullarhárunum gera
yfirborð þeirra hrufótt. Ef ullinni
er dýft í heitt vatn ýfast flögurnar,
rétt eins og þegar skeljar opnast, og
sama gerist ef ullarhárum er nuddað
saman fram og aftur. Hárin verða
eins og þakin litlum krókum sem
krækjast rækilega saman og mynda
þéttan flóka, ullin þæfist. Þetta gerist
ef ullarflík er nudduð í þvotti eða er
innan um annan þvott í tiltölulega
litlu vatni í þvottavél.
„Superwash“
Til að koma í veg fyrir að ullarflíkur
hlaupi þarf að breyta gerð
ullarinnar, koma í veg fyrir virkni
yfirborðsflaganna. Oftast hefur
það verið gert með klórefnum. Við
vinnsluna er notað gífurlegt magn
af vatni og svo mikið af eitruðum
mengunarefnum að í sumum löndum
er hún bönnuð. Því hefur ull verið
flutt til vinnslu í þeim löndum þar
sem mengunarvarnir eru litlar sem
engar, með afleiðingum fyrir fólk
og náttúru þeirra landa. Einnig
mun vera unnið að því að finna
nýjar aðferðir og hættuminni en
klórmeðferðina. Hver sem aðferðin
er við að eyðileggja yfirborðsflögur
ullarháranna þýðir það ekki bara að
hárin hætta að krækjast saman heldur
tapast líka sá sá eiginleiki ullarinnar
að hrinda frá sér vatni og hleypa raka
í gegnum sig. Garnvinnslur hjúpa
þá ullarhárin með einhvers konar
plastefni eða næloni í stað hinna
náttúrulegu yfirborðsflaga svo að
þegar við handleikum garnið er það
ekki lengur náttúruleg ull sem við
snertum heldur plastefni. Og þótt
standi á merkimiðum garnsins að
um sé að ræða 100% ull er það í
raun ekki rétt, í ullina eru líka
komin plastefni sem þekja hvert hár
örþunnu lagi. Á meðan flík úr slíku
garni er notuð og þvegin, og eftir
að hún er ónýt og ullin sjálf horfin
inn í náttúrulegar hringrásir, berast
örplastagnir sem frá henni koma um
alla jörð og haf.
Bæði austan hafs og vestan er
mikil andstaða gegn „superwash“
garni en hérlendis kaupir flest fólk
það óafvitandi um þá meðferð sem
ullin hefur fengið og afleiðingar
hennar. Margar nútímaþvottavélar
eru þó með ágæt ullarprógrömm
og ekki ætti að vera ofverk fólks að
flokka þvottinn sinn og þvo ullarföt
sér. Og svo má minna á að um aldir
hefur ull verið þvegin á Íslandi. Oft í
heitu vatni, nánast við suðu, bæði til
að losna við óhreinindi og til að lita
ullina og það án þess að hún tapaði
sínum undraverðu eiginleikum.
Galdurinn er að setja ullina í mikið
vatn, kalt eða ylvolgt, og hita það
hægt og síðan þarf aftur að kæla
það mjög hægt. Þá eyðileggjast ekki
yfirborðsflögur ullarháranna og þau
eiga að vera jafngóð eftir þvottinn.
Og það er gaman að þvo ull. Hreyfa
hana og kreista í volgu vatni og njóta
áferðar, lyktar og lita.
Sigrún Helgadóttir
náttúrufræðingur.
Sigrún
Helgadóttir.
Hlaupandi ull eða plasthúðuð
Mynd 1. Rafsjármynd af ullarhári
sýnir yfirborðsflögur háranna. Fleiri
gerðir ullarhára má sjá á netinu með
því að slá inn leitarorðin: „wool fibre
microscopic view“
Mynd 2. Sami vettlingur fyrir og eftir
þvott í þvottavél með öðrum fötum.
Stroffið er prjónað með „superwash“
garni og breytist ekkert í þvotti.
Belgurinn er prjónaður úr plötulopa
og þófnar og þykkist við þvottinn.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Ford F350 XLT til sölu!
Innfluttur frá Canada þá ekinn 75,000 km nú ekinn
160,000 km! EGR og DPF tekið úr! ECU forritað ,
Allt sem var tekið úr er til og fylgir með.
Bíllinn er 37” breyttur. Undir palli er festing fyrir
stól / Fifth Wheel. Leður Klæðning á sætum,
Bakkmyndavél og Palllok.
Ekki vsk. bíll. Nýtt í bremsum og smurbók.
Almenna Bílaverkstæðið
símar: 695-2700 og 588-9866.
Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is
VETRARBÚNAÐUR
Salt- og sanddreifarar.
Amerísk gæðatæki sem endast.