Bændablaðið - 01.12.2022, Side 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
afleysingu o.þ.h. Það er samdóma
álit þeirra sem í ferðina fóru að slíku
appi sem tengist skýrsluhaldskerfi
nautgriparæktarinnar þurfi að koma
í gagnið hér á landi hið fyrsta.
Sónarskoðun
Þriðji dagur námskeiðsins fór
að mestu í verklegar æfingar á
sláturhúsinu. Fyrir hádegi voru
kýrnar metnar lifandi og eftir hádegi
voru æxlunarfæri metin og krufin
eftir að búið var að slátra kúnum. Þá
fóru einnig fram æfingar í notkun á
sónar og var Easi-Scan:Go frá IMV
notaður til verksins. Með honum er
hægt að greina fóstur niður undir
30 daga meðgöngu. Hann er líka
með innbyggðu þráðlausu neti,
þannig að bóndinn getur fylgst
með því sem fyrir augu ber í sínum
síma. Þess má geta að um 70-80%
frjótækna í Evrópu nota sónar við
fangskoðun. Með slíku tæki er
einnig hægt að staðfesta hvort um
tví- eða fleirkelfinga er að ræða,
ásamt því að mæla með mun meiri
nákvæmni aldur fósturs. Einnig er
hægt að leggja mat á eggjastokka,
stöðu gulbúa og eggbúa og einnig
blöðrur á eggjastokkum. Loks er
hægt að fangskoða mun stærri
hópa á skemmri tíma með mikilli
nákvæmni, og hefur það í för með
sér minna álag á hendur og axlir
frjótækna.
Nokkrir af þátttakendum á
námskeiðinu eru meðlimir í félagi
norræna nautgriparæktarmanna,
NÖK, Nordisk Økonomisk Kvægavl.
Einn af helstu forsvarsmönnum NØK
í Danmörku er Lars H. Pedersen,
kúabóndi á búinu Klovborg, sem er
rétt norðan við Álaborg. Hann fékk
veður af námskeiði þessu og bauð
hann og kona hans, Lis Pedersen,
öllum hópnum til kvöldverðar heima
á Klovborg. Var þar veitt á báðar
hendur og lýsti heimboðið einstöku
vinarþeli þeirra hjóna. Sungin
voru íslensk ættjarðarlög og náði
ferðin ákveðnum hápunkti þegar
þorri íslensku frjótæknastéttarinnar
söng Bjössi á mjólkurbílnum fyrir
bílstjóra Arla, um leið og hann
dældi rúmlega 12.000 lítrum um
borð í mjólkurbílinn. Niels, sonur
þeirra hjóna, hefur nú tekið við
búrekstrinum og eru um 635 Jersey
kýr á Klovborg og 730 á Lykkegård.
Heimasíða búsins er www.klovborg.
dk.
Allar dyr opnar
Heimferðadagurinn byrjaði með
heimsókn í VikShop, sem er
vefverslun Viking með margvíslegar
rekstrarvörur fyrir bændur og
frjótækna. Starfsemi þessi byrjaði
í bílskúr fyrir nokkrum árum en er
nú komin í allstórt vöruhús, með
veltu nokkuð á annan milljarð kr.
á ári. Markmið verslunarinnar
er að útvega félagsmönnum
rekstrarvörur á hagstæðustu kjörum
sem möguleg eru. Lokahnykkurinn
var síðan heimsókn á nautastöð
VikingGenetics í Assentoft þar
sem starfsemi stöðvarinnar og
framkvæmd kynbótastarfsins var
kynnt í ítarlegu máli. Í lok ferðar
voru þátttakendur sammála um
að framkvæmd námskeiðsins og
viðurgjörningur allur hefði verið
framar vonum.
Enda sýnir reynslan að þegar
knúið er dyra hjá ræktunarfélögunum
á Norðurlöndunum, þá standa okkur
Íslendingum allar dyr opnar. Því
má þakka persónulegum tengslum
sem hafa m.a. orðið til á vettvangi
NÖK. Þau tengsl má nýta með
margvíslegum hætti; eðli máls
samkvæmt geta ekki allir frjótæknar
farið af landi brott í einu og því er
grundvöllur fyrir fleiri námskeiðum
af þessu tagi. Einnig þarf að huga að
nýmenntun frjótækna í framtíðinni og
hvort hún geti farið fram í samstarfi
við Viking. Forsvarsmenn félagsins
hafa áhuga á að skoða möguleika
á kyngreiningu sæðis úr íslenskum
nautum á stöðinni í Assentoft. Þann
möguleika verður að skoða áður en
ráðist er í gífurlegar fjárfestingar í
tækjum og aðstöðu hér heima.
Þá er mjög mikill áhugi á að
koma upp skráningarappi á borð
við HandyVik hér á landi og hafa
íslenskir kúabændur raunar ályktað
um nauðsyn þess og því ætti ekkert
að vera að vanbúnaði að hrinda slíku
í framkvæmd á næstu misserum.
Baldur Helgi Benjamínsson og
Andri Már Sigurðsson.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Velferðarsjóð BÍ
fyrir árið 2022
Umsóknarfrestur er til og með 31.desember 2022
Umsóknum skal skilað til bondi@bondi.is
Tilgangur og markmið sjóðsins er að styðja fjárhagslega
við félagsmenn Bændasamtaka Íslands er þeir verða fyrir
meiriháttar áföllum í búrekstri sínum, s.s. vegna veikinda
og slysa.
Fyrirhugaðar eru breytingar á sjóðnum og hvetjum við því
öll sem eiga rétt á að sækja í sjóðinn að gera það núna.
Nánari upplýsingar ásamt úthlutunarreglum sjóðsins má
finna á vef samtakanna.
Velferðarsjóður Bændasamtaka Íslands
Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Starfsmenntasjóð
BÍ fyrir árið 2022
Umsóknarfrestur er til og með 31. desember 2022
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Bændatorgið
Markmið starfsmenntasjóðs er að efla frumkvæði bænda
til að afla sér endur- og starfsmenntunar í þeim tilgangi að
styrkja færni sína í að takast á við flóknari viðföng í
búrekstri.
Fyrirhugaðar eru breytingar á sjóðnum og hvetjum við því
öll sem eiga rétt á að sækja í sjóðinn að gera það núna.
Nánari upplýsingar ásamt úthlutunarreglum sjóðsins má
finna á vef samtakanna.
Starfsmenntasjóður Bændasamtaka Íslands
Ígrundað yfir æxlunarfærum.
Mynd / SBH
Erum að taka niður
pantanir fyrir sumarið
Nýttu þér forkaupsafsláttinn
ef pantað er fyrir áramót
Zodiac Bombard Sunrider 5.5 og 6.5 á leiðinni sem er fullbúinn fjöldskyldu
bátur á frábæru verði eða frá kr. 2.950.000 m/vsk.
Zodiac PRO 5.5 er mest seldi RIB báturinn á Íslandi í ár. Einstök gæði og
áreiðanleiki. Grunnverð kr. 3.150.000 m/vsk.
Zodiac OPEN 4.8 er vinsælasti vatna og innfjarðarbáturinn í Evrópu í dag.
Verð kr 2.750.000v m/vsk.
Linder álbátarnir sem eru búnir að vera nær uppseldir í Evrópu síðastliðin
sumur koma eftir áramót í stærðum 400460.
Heyrðu í okkur og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
Sportbátar.is er umboðsaðili Zodiac og Linder á íslandi.
Upplýsingar á sportbatar@sportbatar.is og 760-5000