Bændablaðið - 01.12.2022, Side 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
Hún Brynhildur er hress
og kát stelpa sem hefur
mikinn áhuga á dýrum
enda sér hún fyrir sér að
verða bæði dýralæknir
og hrossaræktandi í
framtíðinni.
Nafn:Brynhildur Arthurs-
dóttir Ball.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Hvolsvelli.
Skóli: Hvolsskóli.
Skemmtilegast í
skólanum: Frímínútur,
heimilisfræði og
upplýsingatækni.
Uppáhaldsdýr: Hestar, hundar og
risaeðlur.
Uppáhaldsmatur: Hakk&spaghetti
og pitsa.
Uppáhaldslag: Happy með Billie
Eilish.
Uppáhaldsbíómynd: Skrímsla-
skólinn.
Fyrsta minning: Þegar ég fékk
Furby í afmælisgjöf, þá var ég
mjög lítil.
Hver eru áhugamálin þín:
Hestaíþróttir og Roblox tölvuleikir.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór: Dýralæknir og
hrossarækandi.
Hvað er það mest spennandi
sem þú hefur gert: Þegar ég
fór með pabba í Sleggjuna í
Húsdýragarðinum. Líka þegar ég
hleypti hesti á skeið í fyrsta skipti.
Næst » Sá sem tekur við keflinu er
Gunnar Kári Hjaltason.
Skemmtilegur piparkökukarl heklaður úr 2
þráðum af DROPS Safran.
DROPS Design: Mynstur nr e-220
Mál:
- Breidd: ca 14 cm
- Hæð: ca 15 cm
Garn: DROPS SAFRAN (fæst í Handverkskúnst)
- 50 gr litur nr 22, ljós brúnn (1 dokka dugar í 2
piparkökukarla)
DROPS PARIS frá Garnstudio
- Afgangur af lit nr 17, natur
- Afgangur af lit nr 12, skærrauður
Heklunál: Nr 4 – eða þá stærð sem þarf til að 20 fl
og 18 umf = 10x10 cm með 2 þráðum af Safran.
Heklleiðbeiningar: Allar umf byrja á 1 ll, heklið
fl í hverja fl í umf.
Heklað saman: Heklið 1 fl en bíðið með að draga
þráðinní gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið
síðan næstu fl (eða næstu 2 fl alveg eins), en
þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn
dreginn í gegnum allar l á heklunálinni = 1 fl á
heklunálinni.
PIPARKÖKUKARL: Stykkið er heklað fram og
til baka, byrjið efst á höfði og niður að fótum,
handleggirnir eru síðan heklaðir frá fram- og
bakstykki.
Umferð 1: Heklið 5 ll með 2 þráðum af Safran
með heklunál nr 4, snúið við og heklið 2 fl í 2. ll
frá heklunálinni, 1 fl í hverja og eina af 2 næstu
ll, 2 fl í síðustu ll = 6 fl, snúið við.
Umferð 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 2 fl
í 1. fl, 1 fl í hverja fl þar til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu
fl = 8 fl, snúið við.
Umferð 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl, snúið við.
Umferð 4: Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hverja fl þar
til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 10 fl, snúið við.
Umferð 5-7: Heklið 1 fl í hverja fl = 10 fl, snúið
við.
Umferð 8: Heklið fyrstu 2 fl saman – LESIÐ
HEKLAÐ SAMAN, 1 fl í hverja og eina af næstu
6 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 8 fl, snúið við.
Umferð 9: Heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hverja
og eina af næstu 4 fl, heklið síðustu 2 fl saman
= 6 fl, snúið við.
Umferð 10: Heklið 3 ll, 1 fl í 2. ll frá heklunálinni,
1 fl í næstu ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 6 fl =
8 fl, snúið við. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf
(öxl, hér byrjar handleggurinn síðar).
Umferð 11: Heklið 3 ll, 1 fl í 2. Ll frá heklunálinni,
1 fl í næstu ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 8 fl =
10 fl, snúið við. Setjið 1 prjónamerki í byrjun næstu
umf (öxl, hér byrjar handleggurinn síðar).
Umferð 12-14: Heklið 1 fl í hverja fl = 10 fl,
snúið við.
Umferð 15: Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hverja fl þar
til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 12 fl, snúið við.
Umferð 16: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl, snúið við.
Umferð 17: Heklið 2 fl í 1. Fl, 1 fl í hverja fl þar
til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 14 fl, snúið við.
Umferð 18-20: Heklið 1 fl í hverja fl = 14 fl,
snúið við.
Heklið nú 1 fót þannig:
HANNYRÐAHORNIÐ
Happy uppáhaldslagið!
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Piparkarlinn Gingy
Umferð 21: Heklið 1 fl í hverja og eina af fyrstu
5 fl í umf, heklið næstu 2 fl saman = 6 fl (7 fl eftir
hinum megin í umf), snúið við.
Umferð 22-24: Heklið 1 fl í hverja fl = 6 fl, snúið
við.
Umferð 25: Heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hverja
og eina af næstu 2 fl, heklið síðustu 2 fl saman =
4 fl, snúið við.
Umferð 26: Heklið allar fl 2 og 2 saman = 2 fl,
klippið frá og festið enda.
Endurtakið umf 21-26 hinum megin = 1 fótur
til viðbótar.
Hendi: Stykkið er heklað fram og til baka. Með 2
þráðum af Safran, heklið 5 fl (ca 1 fl í hverri umf)
frá prjónamerki á öxl í annarri hliðinni, snúið við.
Heklið nú 5 umf með 1 fl í hverja fl (alls 6 umf fl).
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið fyrstu 2 fl
saman, 1 fl í næstu fl, heklið síðustu 2 fl saman
= 3 fl, snúið við. Heklið 3 fl saman = 1 fl, klippið
frá og festið enda. Endurtakið alveg eins í hinni
hliðinni.
Heklið annan piparkökukarl alveg eins (=
bakstykki).
Lykkja: Notið skærrauðan Paris, heklið 1 kl í boga
á milli miðju 2 fl efst á höfði á bakstykki, heklið
nú ll í ca 12 cm, endið á 1 kl í sömu fl, klippið frá
og festið enda.
Slaufa: Stykkið er heklað fram og til baka frá
miðju og út á hlið. Með skærrauðum Paris, heklið
2 ll, *3 fl í 1. ll sem hekluð var, snúið við og heklið
1 fl í hverja fl = 3 fl*, klippið frá og festið enda.
Snúið við og endurtakið frá *-* 1 sinni – þ.e.a.s.
að nú er hekluð hin hliðin á slaufunni, klippið frá
og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Notið þráðin
til að vefja um miðju slaufunnar, snúið í kringum
miðju 2 sinnum með þræðinum, herðið að og
festið.
Frágangur: Saumið slaufuna á milli höfuðs
og fram- og bakstykki á framstykki. Með natur
Paris eru augun saumuð út og munnur á höfuð,
saumið með smáu spori neðst á fæturna og neðst
á handleggi, gerið 2 hnúta á fram- og bakstykki
fyrir tölur, sjá mynd.
Leggið fram- og bakstykki ofan á hvort annað
með röngu á móti röngu, heklið saman með 2
þráðum Safran þannig: Heklið 1 kl undir fyrri
handlegg í gegnum bæði stykkin, *2 ll, hoppið
yfir ca 1 cm, 1 kl yst í lykkjubogann í gegnum
bæði stykkin*, endurtakið frá *-* í kringum
allan piparkökukarlinn. Endið á 1 kl í 1. ll undir
handlegg, klippið frá og festið enda.
Jólakveðja, Handverkskúnst
www.garn.is