Heilbrigt líf - 01.12.1963, Blaðsíða 49
á einhæfu fæði, einkum þeim börnum, sem lifa fyrst og
fremst á mjólk og mjólkurafurðum. Orsakirnar eru eink-
um þrjár.
1) mjög eggjahvíturíkt fæði veldur hörðum, þéttum
hægðum.
2) aukin fita í fæðinu veldur þurrum hægðum, en ein-
hæft mjólkurfæði er einmitt auðugt af þessum efnum.
3) börn, sem lítið grófmeti borða vantar þarmafylli
(bulk).
Hægðatregða af völdum mataræðis er furðu algeng og
oft mjög þrálát. Þvi erfiðara er að lagfæra slika
hægðatregðu, sem hún stendur lengur, vegna þess að
í kjölfar mataræðistruflana fylgja aðrar truflanir, svo
sem útvíkkaður endaþarmur og öll eðlileg hægðaregla
truflast. Hægðatregðu fylgja einnig aðrar kvartanir, t. d.
magaverkir og aukið lystarleysi. Börnunum finnst þau
alltaf vera uppþembd og södd.
Að lokum er rétt að ræða lítið eitt um hlóðleysi af völd-
um járnskorts, en járnskortur er einmitt algengasta or-
sök hlóðleysis í börnum.
Fyrstu 6 mánuði ævinnar er vörn barnsins gegn járn-
skorti tengd þeim járnbirgðum, sem barnið fæðist með.
Járnforði barnsins getur orðið ónógur, ef birgðir móður-
innar hafa tæmzt af völdum blóðmissis eða lélegs matar-
æðis á meðgöngutímanum og sömuleiðis vegna endur-
tekinna þungana mcð stuttu millibili.
Fæðist börnin fyrir tímann, er járnforði þeirra oft
ónógur til að fullnægja kröfum hins hraða líkamsþroska.
Einnig er meiri hætta á blóðleysi í fleirburum af sömu
ástæðum og áður greinir. Þar sem ofangreindar orsakir
eru tiltölulega sjaldgæfar nú orðið hér á landi, er tíðni
járnskortsblóðleysis fremur lítil á fvrstu 6 mánuðum
ævinnar og sést þá helzt hjá fyrirburum.
Eftir fyrstu 6 mánuðina þurfa börnin sjálf að útvega
sér járnforða, það er að segja, þau byggja ekki lengur
Heilbrigt líf
47