Úrval - 01.09.1942, Side 4
2
TÍRVAL
Þegar Dutertre og ég komum
á fund Alias majórs, var hann
tekinn í andliti. Það var eins
og þrek hans og taugastyrkur
væri að þrotum komið. Andar-
tak leið, áður en hann tók til
máls.
„Þetta er viðsjárvert," sagði
hann að lokum og yppti öxlum,
„skolli viðsjárverður leiðangur.
En foringjaráðið vill að hann sé
farinn. Ég maldaði í móinn, en
þeir vilja . . .. og svo er nú það.“
Hann talaði líkt og læknir við
rúmliggjandi sjúkling. „Hm,“
segir læknirinn og hristir höfuð-
ið, „dálítið viðsjárvert“; og við
skiljum, hvað hann er að fara:
Að við ættum að gera erfða-
skrána án tafar. Hvorki ég né
Dutertre efuðumst um, að Alias
var að tala um að fórna enn
einni áhöfn.
Þetta er engum að kenna. Það
er ekki okkur að kenna, þótt
við séum ekki neitt ofsakátir.
Það er ekki sök majórsins, þótt
hann kunni ekki vel við sig í
návist okkar. Ekki er það held-
ur sök foringjaráðsins, þó að
það gefi fyrirskipanir. Majórn-
um líður illa, af því að skipan-
irnar eru fjarstæða. Við vitum,
að þær eru fjarstæða, en for-
ingjaráðið veit það eins vel og
við. Það skipar fyrir af þeirri
einu ástæðu, að það verður að
gerast. Það er starf þess á
stríðstímum.
Foringjaráðin gefa í fullri al-
vöru út skipanir, sem aldrei
komast á leiðarenda. Þau biðja
okkur um upplýsingar, sem
ómögulegt er að afla. Þótt við
gætum aflað þeirra, mundu þær
verða þeim gagnslausar, af því
að þær kæmust aldrei til þeirra.
Vegirnir yrðu ófærir, símalínur
slitnar og foringjaráðið allt á
bak og burt. Þýðingarmestu
upplýsingarnar — staða óvina-
hersins — myndu vera orðnar
kunnar fyrir tilverknað óvinar-
ins sjálfs.
Maður gæti ætlað, að í hörm-
ungum undanhaldsins sköpuð-
ust svo fjöldamörg aðkallandi
vandamál, að erfitt væri að
ákveða, í hvaða röð þau skyldu
leyst. í raun og veru hefir sigr-
aður her ekkert með þessi
vandamál að gera — þau hverfa
af sjálfu sér.
Ys og þys eru einkenni sígurs,
en ekki ósigurs. Sigur lýsir ser
með framkvæmd — ósigur birt-
ist sem þreyta, ósamræmi, leið-
indi — og um fram allt sem
tilgangsleysi.
Þessir skyndileiðangrar, sem