Úrval - 01.09.1942, Blaðsíða 25
TJM BOTNLANGABÓLGU
23
síðar söfnuðust læknar sjúkra-
hússins saman umhverfis hann
og tautuðu: „Hann ætti að hafa
það af.“ Og hann gerði það líka.
Þesssi ónafngreindi maður
heyrir til hmni einkennilegu,
draugalegu sveit dauðlegra
manna, sem vísindin gefa líf í
trássi við lögmál tilverunnar.
Og hann var fyrstur af 204
sjúklingum, sem komu á Roose-
velt sjúkrahúsið 1940 með
sprungmn botnlanga. Allir voru
þeir skornir upp og það kom í
1 jós, að 59 þeirra höfðu þegar
fengið lífhimnubólgu. Hið dá-
samlega hvíta duft, sulfanilam-
id, var í öllum tilfellum tekið til
aðstoðar hníf skurðlæknisins,
og engmn hmna tvö hundruð og
fjögurra dó! Þessi undraverði
árangur var birtur árið 1941 af
íæknunum J. E. Thompson, J. A.
Brabson og J. M. Walker —
ásamt verðskuldaðri viðurkenn-
ingu til Muellers og Cassebaums
fyrir hið frumlega uppátæki
þeirra.
Engra alvarlegra eiturverk-
ana varð vart af þessari með-
ferð, nokkrir sjúklinganna urðu
dálítið bláir fyrst í stað, en slíkt
hræðir engan sem þekkir sulfan-
ilamid. Og smásaman gerðu
skurðlæknarnir mikilvægar um-
bætur. Sulfanilamidgjöfin var
nánar ákveðin, og hinu dásam-
lega dufti var ekki aðeins stráð í
kviðarholið heldur einnig í sárið
á magálnum um leið og það var
saumað saman, eftir skurðað-
gerðina, og þá var engin hætta
á, að græfi í sárinu.
Dr. Thompson og samverka-
menn hans, óska ekki eftir að
telja fólki trú um, að dánartala
botnlangasjúklinga sé að kom-
ast niður í núll. Þeir voru heppn-
ir með tilraunir sínar, þar eð
enginn sjúklinganna fékk blóð-
teppu né aðra slíka aukakvilla,
sem að engu leyti snerta líf-
himnubólguna, en gætu verið
lífshættulegir.
Síðar á árinu 1941, gátu þeir
gefið út nýjar skýrslur jafn
glæsilegar hinum fyrri.
f dag getur hinn lítillátasti og
hlédrægasti skurðlæknir orðið
öruggari bardagamaður lífsins,
heldur en hinir stærstu meistar-
ar skurðlækninganna voru fyrir
þrem árum.
Nú geta óbreyttir borgarar,
lyflæknar og skurðlæknar tekið
höndum saman um að ná mark-
inu: Engin dauðsföll af völdum
botnlangabólgu!
CO#OG