Úrval - 01.09.1942, Blaðsíða 93
TUNGLIÐ ER HORFIÐ
91
Correll baðaði út höndunum
og sagði hughreystandi: „Sex
menn er ekki mikill missir fyrir
svona stóra borg.“
Lanser sagði harðneskjulega:
„Ég er ekki á móti því að drepa
menn, ef það er lausn á við-
fangsefni. En stundum er betra
að gera það ekki.“
Correll hafði virt foringjana
fyrir sér. Hann leit til hliðar á
liðsforingjana og sagði:
„Ofursti, gætum við ef til vill
talað saman einir?“
,,Já, ef þér óskið þess. Prackle
liðsforingi og Tonder liðsforingi,
viljið þið gera svo vel að fara
til herbergja ykkar ?“ Og ofurst-
inn sagði við Correll: „Hunter
majór er að vinna. Hann heyrir
ekkert, þegar hann er að vinna.“
Svo horfði hann á umbúðirnar
á höfði Corrells og sagði harð-
neskjulega: „Hafa þeir þegar
reynt að drepa yður.“
Correll þreifaði með fingrun-
um á umbúðunum. „Þetta? Það
féll steinn á mig úr fjallinu í
morgun.“
„Eruð þér vissir um, að hon-
um hafi ekki verið kastað?“
„Við hvað eigið þér?“ spurði
Correll. „Fólkið hér er ekki
ofsafengið. Það hefir gleymt að
berjast.“
„Þér hafið verið meðal þess
og ættuð að þekkja það,“ sagði
ofurstinn. Hann gekk nær Cor-
rell: „En ef þér eruð öruggur,
þá er þetta fólk öðru vísi en
aðrar þjóðir í heiminum. Ég hefi
fyrr tekið þátt í að hernema
lönd. Ég var í Belgíu fyrir tutt-
ugu árum.“ Hann hristi höfuðið
hugsandi og sagði höstum rómi:
„Þér unnuð verk yðar vel. Við
eigum yður þakkir að gjalda.
Ég gat um starf yðar í skýrslu
minni.“
„Þakka yður fyrir, herra,“
sagði Correll. „Ég gerði það,
sem ég gat.“
Lanser sagði, frekar þreytu-
lega: „Hvað hyggist þér fyrir?
Ætlið þér að fara aftur til höf-
uðborgarinnar?“
„Nei, herra. Ég vil vera hér.“
Plunter leit upp frá vinnu
sinni og sagði: „Þér ættuð að
vera með hjálm.“
Correll hallaði sér fram í
stólnum. „Ofursti, ég hélt að
ég ætti að hjálpa til við stjórn
borgarinnar.“
Lanser gekk að glugganum
og horfði út og sneri sér síðan
við og sagði hægt: „Hvað hafið
þér í huga?“
„Þér þurfið að hafa borgar-
stjórn, sem þér getið treyst.