Úrval - 01.09.1942, Page 19

Úrval - 01.09.1942, Page 19
KYNFERÐISMÁLIN I ÞÝZKRI ÞJÓNUSTU 17 V. Hér fylgir skýrsla próf. Gross um vinnubrögð hinnar latnesku deildar „Rassenpolitisches Amt“ í Vestur-Evrópu, en hún lýtur stjórn kunns kynþáttaskrum- ara, dr. Johann von Leers: . .. Belgíu og Frakkland, allt til árinnar Loire, má tvímælalaust telja áhrifasvæði norræns anda, enda þótt þýzk áhrif hafi farið þar þverrandi siðan um aldamót. Afleiðingar þess- arrar hnignunar eru hverju manns- barni augljósar, en vér verðum að leggja oss fram í því að skera fyrir meinin svo fljótt sem auðið er, sök- um þess, að vér þurfurn nauðsynlega að halda á samstarfi þessarra gömlu menningarþjóða við endurreisn Evrópu. 1 Belgiu kappkostum vér af fremsta megni að beina forustu landsins í hendur hins flæmska hluta þjóðarinnar. 1 Frakklandi hafa hermenn vorir þegar frá upphafi átt miklum vin-. sældum að fagna meðal kvennþjóð- arinnar — og er það eitt athyglis- verðasta fyrirbrigði styrjaldarinnar. Það má freistast til að halda að hin- ar frönsku konur hafi fengið sig fullkeyptar á hinum ógjörvilegu sam- löndum sínum og af þeim ástæðum laðast að hinum beinvöxnu, ljóshærðu hermönnum Þjóðverja. Vitaskuld voru þær stúlkur, sem aðhylltust hermenn vora, ekki ávallt kyngöfgi- lega verðmætastar. Þess vegna höf- um vér endurskipulagt frá grunni hjúskaparmálin í Frakklandi, einkum eftir að foringinn sjálfur hvatti til blóðblöndunar þýzkra manna af góð- um stofni og franskra kvenna. Er gifting Otto Abetz sendiherra þar fagurt fordæmi. Þegar franski blökkumannaherinn hélt á burt úr Rínarhéruðunum, lét hann eftir sig lítil negrabörn þúsund- um saman. Franska kvenþjóðin mun ekki geta borið oss slíkar sakir á brýn. Á hinn bóginn mun henni hlotn- azt mikil hamingja af hinum mörgu bláeygu sonum þýzkra feðra, sem væntaniega verða þess megnugir að leiða þessa nágrannaþjóð vora til stórra dáða. Nokkuð gætir þetta oflæti nazista samræmis við stað- reyndir. Synjun Þjóðverja um að láta lausa 1,350,000 franska fanga — fjórða hluta karlþjóð- arinnar á aldrinum 20—40 ára — er meðal annars gert í þeim tilgangni, að halda þeim fjar- vistum frá konum sínum og unnustum. Af þessu leiðir, að vaxandi fjöldi franskra kenna, sem eru siðferðislega ofreyndar af eldskírn þessarrar vargaldar, verða Þjóðverjum að bráð. Niðurlæging sú, sem Parísar- borg er fallin í nú til dags, er af kaldhæðnum borgarbúum þar nefnd marché de viande — kjötmarkaðurinn. Er þar átt við kaffihúsin umhverfis torgið Place de la République, en þang- að fer aragrúi skrifstofu- og 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.