Úrval - 01.08.1945, Síða 3
Nh. 4
TÍMARITSGREINA I SAMÞJÖPPUÐU FORMI
4. ÁRGANGUR <> RETKJAVlK •:> JtJLl—ÁGÚST 1945.
Kunnnr, amerískur myndhöggvari lýsir
gildi handiða fyrir andlega
heilsuvernd.
Hamingjan er í höndum sjálfs þín.
Grein úr „The American Magazine“,
eftir Boris Blai.
■ff^IN ástæða til þess, að við er-
um áhyggjufull, huglítil og
taugaveikluð, er sú, að við not-
mn höfuðið of mikið en hend-
urnar of lítið. Manninum voru
gefnar hendurnar til þess að
vinna með, og ef þær fá að úr-
ættast og verða klaufalegar af
notkunarleysi, verður afleiðing-
in taugaveiklun.
Fyrir skömmu heimsótti ég
þekktan kaupsýslumann. Hann
var að tala í síma þegar ég kom
inn í skrifstofuna. í annarri
hendinni hélt hann á blýanti og
teiknaði án afláts hringi og alls-
konar riss á meðan hann var að
tala. Hann kreppti höndina svo
fast um blýantinn, að hnúarnir
hvítnuðu. Þegar hann hafði lagt
frá sér símann, benti ég á rissið
fyrir framan hann. „Hvað á
þetta að tákna?“ spurði ég.
„Og, ég veit það ekki“, sagði
hann og yppti öxlum. „Það eru
víst taugarnar“.
Það sem var að þessum
manni, og það sem er að miljón-
um manna og kvenna af hans
tagi, er að þetta fólk er að
reyna að lifa á því einu að láta
heilann starfa.
Lögfræðingur, sem ég þekki,
tók eftir því fyrir þrem árum,
að hann var farinn að verða svo
deyfðarlegur og sinnulaus.