Úrval - 01.08.1945, Page 14
12
ttRVAL
spurði faðir minn: „Hvaða
vagn?“ Þegar hann heyrði
svar hennar, spratt hann upp
bölvandi.
Það var líkast því, að fíll,
sem bundinn hefði verið með
miklnm erfiðismunum og fyrir-
höfn, hefði slitið sig lausan og
rutt öllum hindrunum úr vegi.
Móðir mín stóð andspænis hon-
um með orð guðs að vopni og
minnti hann á hið hátíðlega
loforð hans. Þegar þetta dugði
ekkert, greip hún síðasta vopn-
ið: vagninn sem beið. Það var
óþekkt innan f jölskyldunnar, að
peningum væri eytt í vagn til
einskis. Þegar beðið var um
vagn var hann ekki látinn bíða.
þessi vagn, sem nú beið úti
fyrir, snerti streng í sál föður
míns, sem guðsorð móðir minn-
ar höfðu ekki náð til.
Á leiðinni út úr borginni óx
hin innibyrgða reiði föður míns.
Hann hafði bersýnilega treyst
því allt til þessarrar stundar, að
drottinn rnundi taka frá honum
þennan kaleik.
Þegar við kornum inn í kirkj-
una, brann eldur úr augum
föður rníns, eins og í nauti á
hringsviði, sem bíður eftir því
að ráðast á nautabanann. Hann
var særður, reiður og einmana.
Það hafði verið rótað upp í
einkalífi hans, jafnvel alveg
aftur í fyrstu bernskuárin.
Séra Morley, sem var feiminn
og alvörugefinn, gekk til móts
við okkur uppörvandi, en
augnaráðið, sem hann mætti
frá föður mínum, dró úr honum
allan kjark, og hann lét sér
nægja að klappa nokkrum sinn-
um á kollinn á mér.
Þegar séra Morley ltom að
þeim þætti athafnarinnar, þar
sem hann segir: „Afneitar þú
djöflinum og öllum hans verk-
um, fánýti og hégómadýrð
heimsins?" leit faðir minn út
eins og gremjufullur rómversk-
ur hershöfðingi, sem tekur þátt
í auðvirðilegum og villimann-
legum helgisiðum gegn vilja
sínum.
Loks rann upp stund hinnar
eiginlegu skírnar. Ég man
hvernig faðir minn stóð, svip-
þungur og beinn í lafafrakkan-
um sínum; en þegar ég sá séra
Morley dýfa hendinni ofan í
vatnið og bera hana upp að
enni föður míns, lokaði ég
augunum í ofboði frammi fyrir
þessari hryllilegu vanhelgun,
og enn í dag veit ég ekki, hvort
klerkinum tókst að koma vatn-
inu á enni föður míns.