Úrval - 01.08.1945, Qupperneq 54
52
tJRVALi
ingar sýklunum í loftinu (sbr.
„Sýklarnir í loftinu sigraðir!“
í síðasta hefti Úrvals). en hér
skal aðeins drepið á eitt, en það
eru útfjólubláir geislar, sem
nýlega er farið að nota með
engu minni árangri. Þeir ger-
eyða næstum sýklum, sem hafa
í för með sér sjúkdóma eins og
hettusótt, lungnabólgu, bólu
(chicken pox), kvef og háls-
bólgu. Tilraimir hafa verið
gerðar í þessum efnum í nokkr-
um barnaskólum í Bandaríkjun-
um. Hafa þær leitt í ljós, að í
skólastofum, þar sem geislum
þessum hafði verið beitt, fækk-
aði sjúkdómatilfellum barna
um tvo þriðju hluta.
Dr. Max B. Lurie við Pennsyl-
vania háskólann setti búr með
15 heilbrigðum kanínum við
hliðina á búri, sem berklaveikar
kanínur voru í, þannig að and-
rúmsloftið í báðum búrunum
var það sama. Af þessum 15
heilbrigðu kaninum sýktust 11.
Því næst endurtók hann til-
raunina og lét nú útfjólubláa
geisla skína á búrin. Engin
hinna heilbrigðu kanína fékk
nú sjúkdóminn. Dr. Lurie segir:
„Það er líklegt, að útfjólubláir
geislar geti komið í veg fyrir,
að berklasýklar berist manna á
milli í loftinu“.
Allar þessar niðurstöður
gefa góða von um, að hægt
verði að hafa hemil á eða jafn-
vel koma alveg í veg fyrir f jölda
sjúkdórna, þegar styrjöldinni
er lokið. Hagnýting vísindanna
í þágu styrjaldarinnar, hröð út-
breiðsla nýrra hugmynda, og
hið nána samstarf milli lækna-
stéttarinnar annars vegar og
starfsmanna efnarannsókna-
stofanna hins vegar, hafa haft
giftudrjúgan árangur í för með
sér.
STUTT OG LAGGOTT!
Ef nokkuð er meira auðmýkjandi
fyrir stúlku en að roona þegar hún á
eliki a3 roðna, er það að roðna ekki
þegar hún á aS roðna.
— CMcago Tribune.
*
Að vera piparmey er líkt og að
dnikkna — einstaklega notalegt eftir
að maður er hættur að streitast á
móti.
— Edna Ferber.
*
Það er auðveldara að berjast fyrir
hugsunum sínum, en að lifa sam-
kvæmt þeim.
— Alfred Adler.