Úrval - 01.08.1945, Page 63
RANGEYGIR PÁ RÉTTA SÝN
61
gleraugna, að ná aftur fullri
sjónskerpu á bilaða auganu.
Læknirinn setur bindi fyrir heil-
brigða augað. Bilaða augað
verður þá að sá fyrir bæði. Á
sjónréttingarstofunni er augað
látið horfa í tæki, sem bregða
upp skærurn ljósglömpum, sýna
kringlur á hraðri snúnings-
hreyfingu, pendúla, sem sveifl-
ast fram og aftur og fleira, sem
er útbúið í því skyni að skerpa
sjónina. Sérfræðingur nokkur
í Kaliforníu hefir náð athyglis-
verðum árangri með því að
senda sjúklingana í kvikinynda-
hús með bundið fyrir heilbrigða
augað. Þegar sjónin á ranga
auganu nálgast það að verða
eðlileg, má taka bindið frá.
Oft og tíðum eru skurðað-
gerðir nauðsynlegar. Þær eru
jafn hættulitlar og þegar kirtl-
ar eru teknir úr hálsi. Áður
komu þær oft ekki að haldi.
Orsökin var sú, að augun voru
ekki nógu vel þjálfuð og sóttu
aftur í fyrra horf, svo að nauð-
synlegt var að endurtaka upp-
skurðinn. Nú notar skurðlækn-
irinn sjónréttingartæki til að
mæla sjónskekkjuna, og sú vitn-
eskja, sem hann fær þannig,
leiðbeinir höndum hans á skurð-
arborðinu.
En öllum læknisaðgerðum
betri eru þó vitaskuld þær ráð-
stafanir, sem foreldrar geta
gert til að varna því, að bömin
verði rangeyg. Sérstök ástæða
er til að vera á verði, þegar
barnið veikist af farsóttum, því
að upp úr sjúkdómum eins og
skarlatssótt, kikhósta og misl-
ingum gera þessir sjóngallar
tíðum vart við sig. Augljóst er,
að þegar barn, sem lengi hefir
legið rúrnfast, fær bækur til að
lesa eða glerperlur til að þræða
upp á band, reynir það á sjón-
ina, og vegna þess, að líkams-
þrekið er þá skert, getur þetta
orðið ofraun augnvöðvunum.
Þegar bamið þitt er veikt, les-
andi góður, skalt þú gefa þér
tíma til að hafa ofan af fyrir
því með sögum og tónlist.
Fylltu ekki rúm þess með bók-
um og leikföngum, sem gera það
að verkum, að augu þess of-
reynast.
Fari svo, að varúðarráðstaf-
anir reynist gagnslausar, og
barnið verður rangeygt, verður
tafarlaust að taka til einhverra
ráða. Rángeyg börn verða oft
ófélagslynd og skortir vald yfir
hreyfingum sínum, svo að þau
verða klaufaleg í framkomu.
Það er því ráð að leita læknis