Úrval - 01.08.1945, Blaðsíða 79
KYNÞATTAKENNINGAR
77
Það getur verið, og er senni-
lega, talsverður rnunur á arf-
gengnum hæfileikum ýmissa
manngerða; en eins og nú er
ástatt um kjör og aðstöðu
mannanna í heiminurn, getum
vér ekki fundið í hverju sá mun-
ur er fólginn, eða hvort hann er
yfirleitt fyrir hendi.
Önnur viðvörun er tímabær.
Röksemdir þessarar greinar
má með fullum rétti nota til
þess að sýna fram á, að ástæðu-
laust er að örvænta um þjóðir
Þýzkalands og Japan. Ef þeim
eru sköpuð hæfileg skilyrði, er
þess að vænta, að þær muni aft-
ur leggja sinn skerf til velferð-
ar mannkynsins í samræmi við
I strætisvagiunum.
Strætisvagninn var troðfullur. MaSur nokkur stóð við hlið-
ina á konu, sem átti erfitt með að halda jafnvæginu, því að veg-
urinn var ósléttur. Við hliðina á henni sat strákur um ferm-
ingu, án þess að gera sig líklegan til þess að hjóða henni sæti
sitt. Maðurinn horfði á þetta með vaxandi gremju og sagði að
lokum: „Ég skal borga þér tuttugu og fimm aura fyrir þetta
sæti.“ Drengurinn tók þegar boðinu, en maðurinn sneri sér að
konunni og bauð henni sætið.
„ó, nei,“ sagði konan vandræðaleg, „setjist þér sjálfur.“
„Ég kæri mig ekki um að setjast. Eg vildi bara gefa þessum
dreng hæfilega áminningu fyrir ókurteisi.
Konan settist varlega og leit vandræðalega á drenginn og síð-
an á manninn. Svo brosti hún og hallaði sér ánægjulega aftur-
ábak og sagði: „Benni, þakkaðu manninum fyrir tuttugu og
fimm eyringinn.“
Ég er búinn að því mamma,“ anzaði strákur.
— Thomas C. Higgins í „Readers Digest.“
hæfileika þeirra í listum og vís-
indum. En það væri óréttmætt,
ef röksemdir greinarinnar yrðu
notaðar gegn áformum um að
tryggja öryggi Evrópu gegn
Þýzkalandi á fyrstu árunum
eftir styrjöldina.
Boðskapur vísindanna í þess-
um málum felur þannig í sér
góð fyrirheit þráít fyrir allt.
Kynþáttaóeirðir eru alls ekki
ómnflýjanlegar. Vér þurfum
ekki að sætta okkur við að
neinn mannflokkur þurfi um
alla framtíð að vera öðrum skör
lægri. Þeir möguleikar, sem
maðurinn býr yfir, og enn hafa
ekki komið í ljós, hljóta að vera
miklir.