Úrval - 01.08.1945, Side 106
104
tJRVAL
komdu þér af stað. Við áttum
að hitta kvikmyndastjórann í
Coolver City klukkan tíu.“
QAM talaði ekki meira um
^ flug, en hann var ákveðinn í
að reyna aftur, þegar hann væri
einn. Þegar Mully og Lavinia
voru farnar, sló hann öskuna
úr pípunni sinni og bjóst til að
byrja. Hann lagðist á sófann og
einbeitti huganum, og áður en
varði sveif hann í lausu lofti.
Hann sveif til annarrar hliðar,
rúmlega þrjú fet frá gólfinu.
Hér var ekkert mn að villast.
Hann sneri sér á kviðinn, svo
að hann gæti horft niður, hann
kunni betur við það. „Auðvitað
er þetta betra,“ sagði hann,
„hinsegin er ég eins ogfugl, sem
er að reyna að fljúga á bakinu.
Þetta er rétta stellingin.“
Hann baðaði út höndunum og
sveif að sófanum. Þegar hann
var svo sem eitt fet frá honum,
nam hann staðar með því að
þrýsta flötum lófum fram fyrir
sig og kom niður á fæturna eins
léttilega og þröstur.
„Já, ef þetta er ekki saga til
næsta bæjar!“, hugsaði hann.
Hann baðaði aftur út höndun-
um, spyrnti í með tánum og hóf
sig til flugs. Hann flaug nú
hringinn í kring í herberginu,
um eitt fet frá loftinu. Hann
var ekki hikandi lengur og naut
hins nýja hæfileika í ríkum
mæli. Hann komst að raun um,
að honurn veittist flugið ekki
erfitt, og hann þurfti heldur
ekki að hugsa um, hvernig hann
ætti að fljúga. Þegar hann kom
í horn í herberginu, sveigði
líkaminn ósjálfrátt og sveif
áfram.
Heimurinn varð sem nýr í
augum Sams. Herbergið varð
allt annað. Hann gat horft ofan
á hurðir og skápa; og honum
þótti stólarnir sérstaklega
skrítnir séðir ofan frá.
Hann tók eftir húsaskúmi yf-
ir skáp, og ryk var á öllum
dyralistum. „Ég held að Mully
þurfi að lesa yfir vinnukon-
unni,“ hugsaði hann með sér.
Svo gaf hann sig hinni dá-
samlegu íþrótt á vald. Hann
geystist um herbergið, lenti
eins og fjöður og hóf sig upp
rneð því að spyrna með tánum.
Hann gerði tilraunir með erfið-
ar lendingar, til þess að reyna
krafta sína. Hann var svo önn-
um kafinn, að hann tók ekki eft-
if því að Mully og Lavinia voru
komnar heim; þegar þær komu