Úrval - 01.08.1945, Blaðsíða 112
110
TJRVAL
tala um — hvikult loft. Það var
tekið fram í fyrir yður“.
„Jæja“, sagði Sam, „það er
svona“. Hann baðaði aftur út
höndunum, en leit í kringum sig,
til þess að vita, hvort Mully
væri nálæg. „Korndu fram í
eldhús, lagsmaður,“ sagði Sam,
„við verðum síour truflaðir
þar“.
1 eldhúsinu útskýrði Sam,
hvemig loftið verður hvikult
öðru hvoru, og hversvegna fugl-
ar geta þolað það, af því að
vængir þeirra eru sveigjanlegir.
„En flugvélavængir láta ekki
undan“.
„Mjög athyglisvert,“ sagði
pilturinn. „Haldið áfram“.
Og Sam hélt áfram útskýr-
ingum sínum. Veizlunni var
lokið, áður en Muily hugkvæmd-
ist að leita að Sam í eldhúsinu.
Þegar hún kom fram, sagðist
ungi maðurinn þurfa að fara
strax. Mully beið, þangað til
hann var farinn. Þá einblíndi
hún á sex tómar bjórflöskur á
borðinu.
„Ertu byrjaður á fíflaskapn-
um aftur,“ byrjaði hún. Sam
þekkti Mully sína, svo að hann
lagði á flótta og kom ekki heim
fyrr en um kvöldverðartíma.
Hann sat þögull við borðið, en
Mully og Lavinia sugu upp í
nefið og hundsuðu hann, eins
og konur gera, þegar karlmað-
ur hefir fallið í ónáð hjá þeim.
Loks brast Lavinia í grát.
„Æ, stilltu þig nú,“ bað Sam
þreytulegum rómi. „Hvernig
getur telpan gert að því þó hún
gráti?“ sagði Mully, giöð yfir
því að hafa fengið átyllu til
þess að taka þátt í deilunni.
„Guð veit, að við gerum eins og
við getum, en þú eyðileggur allt.
Þú fleiprar um hluti, sem þú
hefir ekki minnsta vit á — og
hellir í þig bjór frammi í eíd-
húsi“.
„Sei, sei. Við drukkum aðeins
tvær eða þrjár flöskur hvor. Ög
þetta er amerískur bjór — sem
ekkert gagn er í“.
„Það fóru allir að hlægja að
þér,“ hélt Mully áfram.
„Þeir kunna þá ekki manna-
siði,“ sagði Sam. „Ég tala ekki
bull, þegar ég tala á annað borð.
Piltarnir í Arnarkránni voru
allir hrifnir af því, sem ég lagði
til málanna“.
„Þeir ræflar,“ hvæsti Mully.
„Þetta er ekki Arnarkráin,
pabbi, þetta er Hollywood,“
sagði Lavinia kjökrandi. „Og
þú ferð með herra Hanks fram
í eldhús“.