Úrval - 01.08.1945, Síða 131
Dauðar borgir.
Framhald af 2. kápusíðu.
Frankfurt liafi mátt sjá lista
yfir tuttugu eða þrjátíu kvik-
myndahús, leikhús, næturklúbba
og aðra staði, sem gestirnir gátu
sótt sér til skemmtunar?
Flestir Englendingar vita lítið
um ástandið eins og það er í
Þýzkalandi nú, og í því efni er
hlutlæg frásögn staðreynda,
hversu óskáldleg sem hún er,
vissulega þýðingarmeiri heldur
en myndauðugar lýsingar, þó að
þær séu áhrifaríkar. Sannleik-
urinn er nógu ljótur.
— A. R. Urquhart.
Vér erum sammála herra Ur-
quhart um það', að herra Mendel-
sohn hefir sennilega vanmetið
möguleíkana á því að lappa til-
tölulega fljótt uppá margar
hinna dauðu borga Þýzkalands.
Hver, sem heimsótti Coventry í
nóvember 1941, mundi hafa trú-
að því, að verksmiðjurnar þar
yrðu teknar til starfa eftir þrjá
mánuði? En slíkar bráðabirgða-
viðgerðir eru vitanlega algjör-
lega ófullnægjandi á venjuleg-
um friðartímum. Það eru leik-
hús, kvikmyndahús og nætur-
klúbbar starfandi í Þýzkalandi
-—■ í mörgum tilfellum komið
fyrir í kjöllurum og byggingum,
er notast má við sem stendur.
Fólk getur lifað og lifir í hinum
dauðu borgum, og herra Mendel-
sohn lagði áherzlu á þetta í
grein sinni. En munurinn á slíku
lífi og því sem kallast getur
nokkurnveginn normalt líf er
svo mikill og djúpið þar á milli
svo breitt, að það virðist, eins
og hann heldur fram, vera ofur-
mannlegt verk að brúa það.
— Ritstj. N. S. & N.
Skýringar á orðum á öftustu kápusíðu
1. — b 11. — C 21. — c
2. — a 12. — a 22. — b
3. — b 13. — c 23. — a
4. — c 14. — a 24. — b
5. — a 15. — b 25. — c
6. — b 16. — b 26. — b
7. — á 17. — a 27. — a
8. — c 18. — c 28. — c
9. — b 19. — a 29. — a
10. — a 20. — b 30. — b