Úrval - 01.12.1946, Síða 5
HINN MIK.LI ÞURRKUR
3
jarðarhaf hveiti, bygg, olífuolíu,
kindakjöt, ávexti og grænmeti.
Haustregnið 1944 kom seint og
akrar arabiska bóndans voru
eins og vatnselgir um það leyti,
er haustsáning skyldi fara fram.
En þegar korninu hafði verið
sáð, byrjaði þurrkurinn.
I ársiok 1945 var brauðkorns-
framleiosla Algeriu, Tunis og
Moroccos hröpuð úr 4 miljón-
um smálesta í 1 miljón. Ein
miljón smálesta af hveiti er tal-
in nægja í ársbirgðir af brauði
handa 10 miljónum manna.
Uppskerubresturinn þýddi, að
30 miljónir karla, kvenna og
barna í Miðjarðarhafslöndunum
urðu að vera án brauðs, ef ekki
kæmi hjálp annars staðar að.
Auk þess hafði helmingur bú-
penings í þessum löndurn drep-
ist eða verið fargað, olífufram-
leiðslan var orðin sama sem
engin og allur matvælaútflutn-
ingur hafði stöðvast.
Sama lömunin tók að breiðast
út um Suður-Afríku. Helmingur
maisuppskerunnar, sem að jafn-
aði nægir hinum f jölmennu, inn-
fæddu íbúum til lífsframfæris,
eyðilagðist algerlega. Helming-
ur hveitiuppskerunnar og mest
af kartöflu- og baunauppsker-
unni brást einnig. I árslok 1945
varð Suður-Afríka að flytja inn
matvæii sér til viðurværis,
Iiinu megin jarðar, í Ástralíu,
sern framleiðir geyshnikið a'f
korni, sykri, kjöti, mjólkuraf-
urðum og ávöxtum — var
ástandið svipað. Vorið 1944
voru sífelldir þurrkar og ekki
ský á Iofti. Lömbin, sem sjá
Bretlandi fyrir kjöti að nokkru
lejdi, tóku að hrynja niður.
Kornuppskeran brást, og Ástra-
Iíumenn urðu í fyrsta skipti í
sögu sinni að taka upp skömmt-
un. Það sem hægt var að spara,
var sent til England, en það var
ekki mikið.
Þegar þurrkurinn hafði herj-
að í Suður-Ameríku, Afríku og
Ástralíu, hélt hann til Eiuópu.
Þegar haustsáningin var að
hefjast í Dónárdalnum, aðal
kornf or ðabúri Mið-Evr ópu, gerði
óhemju úrkomu. Þegar stytti
upp, kom þurrkurinn, og hann
hélst allt simiarið 1945 — versti
þurrkkaflinn, sem gengið hefir
yfir Evrópu á síðari tímum.
Hveitiframleiðsla Ungverja-
lands minnkaði að miklum mun,
og kornuppskeran varð ekki
nema helmingur af venjulegri
uppskeru. Kartöflur brugðust
líka um gervalla Mið-Evrópu.
Þar sem brauð og kartöflur er