Úrval - 01.12.1946, Blaðsíða 84
tjRVAL
.-S2
a.mxa hafa raddir óséðra söng-
kvenna verið samræmdar vara-
hreyfingum fallegra en lag-
lausra leikkvenna. — Og allir
kvikmyndahúsagestir vita, þeg-
ax þeir sjá og heyra fræga leik-
axa leika á hljóðfæri af mikilli
list, að það er blekking, — að
í rauninni eru það ágætir, jafn-
vel frægir, tónlistarmenn, sem
hafa. annazt hljóðfæraleikinn. —
Það er ótrúlegt en satt, að
fréttamyndir, hin lifandi sagna-
rit okkar tíma, eru teknar sem
þögular myndir. Margar af
heztu fréttamyndurn stríðsins
fengu ekki hljóminn fyrr en eft-
ir á, í vinnustofum kvikmynda-
félaganna. —
Það er augljóst mál, að ekki
var auðvelt að senda fyrirferð-
armikil hljómtökuáhöld til allra
vígvalla eða taka þau með
í hverjum loftárásarleiðangri til
Berlínar. Hin réttu hljóð voru
tekin á plötur við hentugleika.
Þegar maður heyrði í kvikmynd
þjd; í flugsprengju, drunur í
sprengjuflugvél eða skothvelli,
þá voru það vissulega þessi
hljóð, sem maður heyrði, og
engin önnur. En þau komu
sjaldan frá þeim tækjum eða
vopnum, sem maður sá á tjald-
inu. —
Kvikmyndaframleiðendumir
verða að vara sig á mistökum.
— Lítill drengur kom einu sinni
upp um þá, þegar hann var að
horfa á fréttamynd. Sprengju-
flugvél sást fljúga með miklum
drunum. En drengurinn hróp-
aði háðslega: „Þetta er hljóð í
„Spitfire“! (orustuflugvél). Og
hann hafði rétt fyrir sér. Slík
og þvilík mistök eru nokkuð al-
geng.
Hljóðfræðingar útvarpsstöðva
og kvikmyndafélaga þurfa
hverju sinni að ganga úr skugga.
um, hvort verið geti að hið
raunverulega hljóð hljómi verr
en eftirlíking. Hið rétta hljóð
hljómar oft alls ekki eðlilega í
útvarpi eða kvikmynd, og líkist
lítið því, sem það á að vera,.
Stundum má lagfæra það með
því að draga úr hljómstyrkn-
um, auka hann eða þá með því
að breyta hljóðinu einhvem-
veginn. En oft verður að finna
upp á einhverjum brögðum. Þó
er hitt að verða algengara í
seinni tíð, að menn sækjast eftir
að nota hin raunverulegu hljóð
en forðast eftirlíkingar.
Árum saman létu menn sér
nægja að hrista tinþynnu til að
framleiða þrmnur. Nú er nóg til
af hljómplötum með raunvera-