Úrval - 01.12.1946, Síða 42
40
ÚRVAL
konar óhóí'semi, sem hafði ver-
ið mjög áberandi í fyrri heims-
styrjöldinni.
Brezku herirnir í norður Af-
iíku höfðu haft sex foringja á
minna en tveim árum. Þessir
herir mynduðu áttunda herinn.
Montgomeiy var skipaður yfir-
maður hans í ágúst 1942.
„Strafer“ Gott, sem hafði
verið valinn til að taka við
stjóm áttunda hersins á hættu-
stund árið 1942, fórst í flug-
slysi þegar hann var á leið til
að taka við hinni nýju stöðu
sinni. Það var sem varamaður,
að Montgomery var settur í
stöðuna. Hann greip tækifærið,
sem honiun gafst, með þeirri
seiglu og festu, sem er einkenn-
andi f jirir hann. Þetta eru tveir
af beztu eiginleikum hans, en
þeir eru margir.
I samsæti, sem ég var í fyrir
stríð, lét ég í ljósi þá skoðun, að
góður árangur væri að einum
þriðja hluta að þakka hæfni,
að einum þriðja hluta heppni og
að einum þriðja það, að kunna
að grípa tækifærin áður en ham-
ingjuhjólið snýzt.
Montgomery var fullkomin
ímjmd þessara niðurstöðu. Ýms-
ar hindranir höfðu orðið á
vegi hans á fyrra æviskeiði.
Venjur, sem starfsbræðrum
hans féllu oft illa, og tilhneiging
til að fara eigin götur í skoðun-
um, stofnuðu nokkrum sinnum
frama hans í hættu.
Jafnframt var hann ekki að-
eins óvenjulega duglegur að
læra og áberandi stöðugur við
að undirbúa sjálfan sig til að
grípa gæsina þegar hún gæfist,
heldur átti hann einnig festu,
sem aldrei lét bugast, við að
framkvæma sérhvert verkefni
eftir beztu getu, þangað til
stærra verkefni gafst, og þá
greip hann það með sömu fest-
unni.
Aðalgagnrýnin, sem beint
hefir verið að honum sem hers-
höfðingja, hefir verið sú, að
hann væri of varkár, svo að
hann sleppti úr greipum sér
hernaðarlegum tækifærum, og
að hann hefði tilhneigingu til
að „brjóta skel með sleggju."
Þetta er ekki með öliu rangt.
Ákaflega gætileg og hnitmiðuð
framkvæmd gæti bent á skoil á
hugrekki, en svo er þó ekki að
því er hann varðar. Ennfremur
verður að taka tillit til hinna
sálrænu áhrifa, sem hann hef-
ir orðið fyrir vegna afbrýði-
semi út af sigursæld hans, og
vegna þess hversu mikla athygli