Úrval - 01.12.1946, Blaðsíða 61
YFXRBURÐXR HVlTA KYNSTOFNSINS
59
lítur á klukkuna (evrópeisk
uppfinning frá miðöldum), og
fer inn í baðherbergið (postulín
frá Kína, tannbursti frá Evrópu
átjándu aldarinnar, sápa frá
Fom-Galilíu, salemi af róm-
verskum uppruna, rakhnífur úr
kolblöndnu járni, fundið upp í
Indlandi).
Þegar hann snæðir morgun-
verðinn, birtast á borðinu fyrir
framan hann uppfinningar frá
öllum öldum og þjóðum: Gaff-
allinn (fundinn upp á ítalíu á
miðöldum), kaffið (abbysinsk
jurt, uppgötvuð af Aröbum),
sykur (upprxmninn í Indlandi),
vöflur (Norðm'Iönd) smjör
(upprunalega fegrunarlyf frá
löndum við Miðjarðarhafsbotn)
og reykt svínsflesk (svín era
komin frá Suðaustur Asíu;
reyking matvæla er norræn að-
ferð).
Því næst tekur hann sér far
með lestinni (ensk uppfinning),
kveikir sér í sígarettu (af mexí-
könskmn uppruna) og fer að
lesa blaðið sitt (bókstafir,
fundnir upp af Forn- Semítum,
prentun, þýzk uppfinning, papp-
ír, upprarminn í Kína). Þegar
hann rennir augunum yfir frétt-
ir dagsins, þakkar hann að lík-
indum guði (hebreskur guð)
fyrir það á indo-evrópeisku
tungumáli, að hann sé 100%
(tugakerfið, fundið upp af
Grikkjum) Ameríkumaður
(dregið af nafni Amerigos
Vespuccis, sem var ítalskur
landf ræðingur).
Það er knýjandi skylda okk-
ar nútímamanna, að meta rétt
og sanngjarnlega afrek hinna
ýmsu kynþátta og þjóða heims-
ins. Tvær billjónir manna geta
að eins lif að í sátt og samlyndi á
þessari jörð, sem er allt í einu
orðin svo lítil, ef við aukum
þekkingu okkar á meðbræðrum
svo mjög, að hún verði sambæri-
leg við þekkingu okkar á vís-
indasviðinu. Við skulum kapp-
kosta að miklast ekki af ímynd-
uðum yfirburðum okkar yfir
aðrar þjóðir, en stuðla heldur
að aukinni þekkingu, vináttu og
samúð meðal allra þjóða heims.
Ef þú tekur ofan hattinn i köldu veðri, mun þér kólna á fót-
unum,
Hendur og' fætur eru þeir hlutar likamans, sem fyrst finna til
hitamissis.
8*