Úrval - 01.12.1946, Qupperneq 71
AFTURHVARFIÐ TIL HAGSÆLDAR
éö
Bandaríkjanna, að Bretland
sameinaðist þeim þannig, að það
yrði fimm ríki í Bandaríkjun-
um, Norður-England, Suður-
England, Skotland, Wales og
Norður-írland.
Þegar Bretland var laust
undan stórveldismartröðinni,
tók það að breyta um til batn-
aðar. Landher, flugher og floti
var minnkaður um 80%, en við
það sparaðist fé, sem nam á
öðru friðartímabilinu meira en
500 miljónum punda á ári, og
þetta var ósegjanlegur léttir
fyrir skattgreiðendur. En þetta
hafði líka í för með sér, að
heljarstórar stjómarbyggingar
urðu lausar til íbúðar og ann-
arra afnota, þar sem þeirra var
ekki þörf lengur. Þetta átti til
dæmis við um bækistöðvar her-
stjómarinnar, sem áður höfðu
verið gistihús. Þingið hafði nú
nægan tíma til þess að gefa sig
óskipt við innanlandsmálefn-
um, þegar Bretland reyndi ekki
lengur að vera siðgæzlukona
Evrópu og alls heimsins. Sýni-
lega var ekkert útlit fyrir, að
Bretland yrði aftur kolaútflutn-
ingsþjóð, og mannaflinu var æ
meir snúið að því að framleiða
nægilega mikið af matvöra í
heimalandinu, og það var nú því
auðveldara, sem fólkinu fór sí-
fellt fækkandi.
Það er alltaf gaman að rekja
sögulega þýðingarmikla atburði
til upphafs þeirra. 1 þessu rnáli
var frumkvæðið hjá forsætis-
ráðherranum (þeim gáfaða).
Hann tók eftir bók, sem lá á
borði einkaritara hans, og á
þessari bók stóð blátt áfram
nafnið Voltaire. Hann hélt, að
þetta væri nafn á nýrri íþrótt
og tók bókina heim með sér.
Þegar hann hafði iesið Cand-
ide/ sá hann, að kjarna mann-
legrar vizku var að finna í síð-
ustu orðum þessa meistara-
verks: Cela est bicn dit, mais il
faut cultiver notre jardin.
(Þetta er vel mælt, en maður
verður að rækta garðinn sinn).
Hann lét sér þetta að kenningu
verða. Svo vildi til, að honum
hlotnaðist fyrstum brezkra
stjómmálanna sá einstaki
heiður, að herra Bernard Shaw
fór um hann viðurkennandi orð-
um. En skáldið gerði 110. af-
mælisdag sinn minnisstæðan á
þann hátt.
* Þessi bók kom nýlega út á is-
lenzku í þýðingu Halldórs Kiljan Lax-
ness. Ber hún nafnið Birtingur.
Ritstj.