Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 2
Gagnslaus fróðleikur.
Framhald af 3. kápusíðu.
kosinn hefur verið, var aðeins 14
ára. • Rauðbrystingurinn étur 8
sinnum þunga sinn á einum degi.
• Klukkan i sankti Páls kirkjunni
í London sló eitt sinn 13 högg um
miðnætti, og bjargaði með því lífi
varðmanns, sem ákærður var fyrir
að hafa sofið á verðinum: hann
sór, að hann hefði heyrt klukk-
una slá 13 högg, og það reyndist rétt.
• Tveir munkar lögðu fyrstir
allra stund á silkivefnað I Evrópu.
Þeir höfðu lært hann í Indlandi og
komu þaðan árið 536. • Árið
1475 var gylta ein í Englandi
og grísir hennar ákærð fyrir að
hafa drepið barn og étið það.
Gyltan var fundin sek og hengd,
en grísirnir voru sýknaöir vegna
þess, hve þeir voru ungir. • Jóla-
dagur var ekki hátíðlegur haldinn
sem fæðingardagur Krists fyrr en
400 árum eftir kristburð. • Það
var Konstantinus keisari, hinn
„opinberi" stofnandi kristinnar
kirkju, sem stakk upp á því, að
fæðingardagur frelsarans yrði
hátíðlegur haldinn 25. desember,
en það var hátíðisdagur hins
rómverska akuryrkjuguðs Satúm-
usar.
Gamlir árgangar Úrvals.
Allmörg gömul hefti Úrvals eru
uppseld, en nokkur eintök eru enn
til af öðrum. Til hægðarauka
fyrir þá, sem eiga vilja Úrval frá
upphafi, en vantar eitthvað inn í,
birtum við eftirfarandi:
I. árgangur er allur uppseldur.
n. árgangur: Af honum eru 1.
og 3. hefti uppseld, en hin til í
nokkrum eintökum.
m. árgangur: 1. og 3. hefti
uppseld, hin til í nokkrum eintök-
um.
IV. árgangur: 1. hefti uppselt,
hin til í nokkrum eintökum.
V. árgangur: Fæst allur, nema
1. hefti, 4. hefti þó aðeins í örfá-
um eintökum.
VI. árgangur fæst allur, en flest
heftin aðeins í fáum eintökum.
tJKVAL tímaritsgreina i samþjöppuðu formi.
Ritstjóri: Gísli Ölafsson, Leifsgötu 16. Afgreiðsla Tjamargötu 4,
pósthólf 365, Reykjavik. Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 8,50
hvert hefti. Utanáskrift tímaritsins er: Úrval, pósthólf 865, Reykjavík.
Sent til allra bóksala á landinu, og taka þeir við áskriftum. Einnig
er ritið sent til áskrifenda, sem ekki búa í nágrenni bóksala.
ÚTGEFANDI: STEINDÓBSPRENT H.F.