Úrval - 01.02.1948, Síða 23
RÓMANTÍSK ÁST 1 RÉTTU LJÓSI
21
maka. Brúðir og brúðgumar,
sem aldrei hafa sézt fjTir gift-
inguna, verða engu síður ham-
ingjusöm hjón en við, sem velj-
um sjálf.
Sannleikurinn er sá, að æsku-
fólk okkar er engan veginn
hreint og ósnortið, þegar örlög-
in láta það loks mæta hinum
útvalda eða útvöldu, sem það
verður bálskotið í. Þvert á móti,
þegar tími er kominn tilfyrirþað
að verða ástfangið, leitar hugur
þess til þeirrar persónu, sem
fyrst verður fyrir. Ástríðan er
fyrst fyrir hendi, en síðan kem-
ur röðin að persónunni, sem á-
stríðan beinist að. I hjónaskiln-
aðarmálum kemur það oft í ljós,
hve þessi persóna hefur verið
óheppilega valin.
#
Hollywood notfærir sér óspart
þetta ástasmjaður nútímans.
Það er t. d. eftirtektarvert,
hvernig þessi dýrkun hinnar
rómantísku ástar kemur fram
í ævisögum mikilmenna. Við rek-
um okkur undantekningarlaust
á það, að afrek þeirra voru al-
gerlega að þakka örvun og hvatn-
ingu elskandi kvenna, venjulega
eiginkvenna, því að annað væri
ósamrýmanlegt Hollywood-sið-
fræðinni. Það kemur meira að
segja oft í Ijós, að mikilmenn-
ið hefur krækt í hugmyndirnar
frá eiginkonu sinni, sem horfir
á það full aðdáunar, þegar hann
ber þær fram sem sínar eigin.
Mikilmenni Hollywood eru frek-
ar litlir karlar.
Ég er ekki í neinum efa um
það, að sumir miklir menn
styrktust í starfi sínu vegna ást-
ar góðrar konu, einkum að því
leyti, að hún skapaði þeim gott
heimili og þar með góð vinnu-
skilyrði. En á hinn bóginn hafa
líka mörg mikilmenni unnið
sigra sína, þrátt fyrir eiginkon-
urnar. Það er ekki ólíklegt, að
mörg afrek karlmanna séu því
að þakka, að þeir létu konur
ekki hafa áhrif á sig, þar á
meðal eiginkonur. Konur eru oft
afbrýðisamar, ekki aðeins
gagnvart öðrum konum, heldur
líka gagnvart öllum þeim áhuga-
málum karlmannsins, sem draga
athygli hans frá þeim sjálfum.
Margar konur eru afbrýðisam-
ar gagnvart starfi eiginmanns-
ins, og þeim gremst, ef hann
sekkur sér of mikið niður í það.
Þannig er þá sannleikurinn
gagnstæður þeirri kenningu
Hollywood, að ástin veki snilli-
gáfuna! Ástin vekur ekki snilli-