Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 29
SlGARETTAN SEM MORÐINGI
27
is í öllum vöðvum, þar á meðal
hjartavöðvanum. Skortur
fjörefnis veldur auk þess slapp-
leika, mæði, drunga og öðrum
einkennum, sem benda til þess,
að líkaminn fái ekki nóg súrefni.
En það eru einmitt þessi ein-
kenni — og það eru fyrstu ein-
kennin um corcmary thrombosis
— sem finnast hjá reykinga-
mönnum.
Með öðrum orðum: niðurstaða
rannsókna dr. McCormicks sýn-
ir, að næstum öll fórnarlömb
þessa sjúkdóms á þriggja ára
tímabilinu voru miklir reykinga-
menn. En jafnframt kom í Ijós,
samkvæmt framburði eigm-
kvenna hinna látnu, að mennirnir
höfðu haft svo óheppilegt mat-
aræði, að þeir hafa hlotið að
þjást af B og C fjörefnaskorti.
Þessi fjörefni geta ef til vill
bjargað þeim, sem fá tóbaks-
eitrun.
Er þá hægt að eyða eitrinu
með því að taka inn nóg af B og
C fjörefnum og koma þannig í
veg fyrir að blóðtappi myndizt?
Frekari rannsóknir munu leiða
þetta í Ijós. En álit dr. McCor-
micks er þetta:
„Ég gef mikið af B, og C f jör-
efnum við coronary thrombosis.
Ég hef orðið þess var í mörgum
tilfellum, að hjartsláttur, mæði
og verkir fyrir hjarta hafa batn-
að mjög við þessa meðferð. En
það er þýðingarlaust að gefa
þessi f jörefni, þegar sjúkdómur-
inn er kominn á of hátt stig.“
Okkur getur skilizt, hve skað-
leg sígarettan er, þegar við vit-
um, hvaða eiturefni sogast inn
í líkamann með reyknum. Niko-
tínið er sennilega skaðlegast af
þeim öllum, en efnafræðingar
hafa auk þess fundið þessi efni:
kolsýring, brennisteinsvatns-
efni, methanol, metylamin, amm-
oníak, formaldehyd, methan,
pyridin, furfurol, karbolsýru,
blásýru, arsenik og blý. Af sum-
um þessara eiturefna er magn-
ið að vísu mjög lítið, en af öðr-
um kemst allmikið inn í líkam-
ann, þegar tekið er tillit til þess,
að meðal reykingamaður reykir
þúsundir sígaretta á ári. Mörg
þessara eiturefna orka beint á
starfsemi líffæranna.
Dr. McFarland frá Halperin
og dr. Niven frá Harvardhá-
skóla, hafa sannað með tilraun-
um, að kolsýringur úr þrem síg-
arettum dragi svo mjög úr hæfni
blóðsins til þess að taka í sig
súrefni, að sjón augnanna
minnki að mun.
Á hinn bóginn er það stað-