Úrval - 01.02.1948, Side 35
Gerðu Þjóðverjar tilraun til innrásar
í England haustið 1940?
„Wir fahren gegen Engelland."
Grein úr „Verden IDAG“,
eftir Thomson sjóliðsforingja.
OUMARIÐ 1940 sungu Þjóð-
verjar: „Wir fahren gegen
Engelland“ á öllum kaffihúsum.
Þýzkir hermenn lögðu sig fram
um að læra gagnlegar enskar
setningar eins og t. d.: „Við
gerum allt upptækt." Rosknir,
enskir herramenn örkuðu um
með skotvopn og borða heima-
varnarliðsins um handlegginn.
Brezki flugherinn gerði lát-
lausar árásir á pramma, sem
safnað hafði verið saman hin-
um megin Ermarsunds. Allir
bjuggust við, að Þjóðverjar
gerðu innrás í England.
Og mann frá manni breiddist
orðrómurinn um, að þeir hefðu
reynt að gera innrás, en hún
hefði mistekizt. Kringum 6.
september gekk sú saga víða
við suðurströndina, að mikill
fjöldi líka af þýzkum hermönn-
um hefði rekið á land. Maður
nokkur sagði blaðamanni eftir-
farandi sögu:
„Sannleikurinn er sá, að öll
Ein af þrálátustu sögusögnum úr
styrjöldinni er sagan um þúsundir
þýzkra hermanna, sem drukknuðu
eða fórust í eldi við tilraunir til inn-
rásar í England haustið 1940. Thom-
son sjóliðsforingi, er ávann sér traust
fréttamanna sem yfirmaður frétta-
ritskoðunarinnar í Englandi, skýrir
hér frá því, hver fótur var fyrir þess-
um orðrómi.
suðurströndin er undir umsjá
hersins. Þó að þeir álíti nauð-
synlegt að leyna fundi líkanna,
geta þeir það ekki. Mér nægir
að vita, að lokaðir vörubílar
aka á einum stað til og frá
ströndinni, og að dularfullir
sjúkrabílar eru á ferli annars
staðar við ströndina. Það er
áreiðanlega eitthvað óvenju-
íegt á seiði.“
Samtímis gekk önnur saga
um alla Ameríku. Enski flug-
herinn hafði eytt þýzkum inn-
rásarflota, sem var að æfingum
í Ermarsundi. Frá Lissabon
kom frétf um, að Þjóðverjar