Úrval - 01.02.1948, Side 47
Ýmislegt úr heimi
vísindanna.
/
I stuttu máli.
Úr „Science News Letter", „Chemical Engineering News“
og „Magazine Digest“.
Ótráir eiginmeiui.
Meira en þriðjungur og senni-
lega allt að helmingur banda-
rískra eiginmanna er konum
sínum ótrúr einhvern tíma á
hjónabandsárunum.
Þetta er ein af niðurstöðunum,
sem dr. Alfred C. Kinsey og sam-
starfsmenn hans við Indianahá-
skólann í Bandaríkjunum hafa
komizt að við níu ára rannsókn-
ir á kynlífi karlmanna í Banda-
ríkjunum.
Tólf þúsund menn af öllum
stéttum þjóðfélagsins hafa ver-
ið spurðir í trúnaði um þessi
einkamál sín, og niðurstöðurnar
af viðtölum við 5300 af þessum
mönnum hafa verið birtar í bók-
inni Sexual Behavior in the Hu-
man Male. (Kynferðisleg hegðun
karlmannsins).
Dr. Kinsey vonar, að þessum
rannsóknum, sem njóta fjár-
styrks frá Rockefellerstofnun-
inni, muni verða haldið áfram,
unz þær hafa náð til 100 000
einstaklinga, þar á meðal
kvenna. Dr. Kinsey viðurkennir,
að þessar háu tölur um ótrú-
mennsku eiginmanna séu ekki
óyggjandi. Þó að viðtölunum
væri hagað þannig, að allt var
gert til að vinna traust mann-
anna, er sennilegt, að allmargir
hafi ekki unnið bug á ótta sín-
um og þorað að viðurkenna ó-
trúmennsku sína.
„Athyglisverðasta niðurstað-
an af þessum rannsóknum,"
segir dr. Kinsey, „er sú, að
flest dæmi um framhjátökur
meðal lægst launuðu stéttanna
er að finna meðal ungra manna,
en fækkar með aldrinum. Af
þeim, sem kvæntust innan við
tvítugt, reyndust 45% ótrúir, en
ekki nema 27% um fertugt og
aðeins um 19% um fimmtugt.
Þessu var öfugt farið hjá
háskólagengnum mönnum. I
yngsta aldursflokknum voru
ekki nema 15—20% ótrúir, en
þeim fjölgaði með aldrinum og
náðu hámarki um fimmtugt,
27%.“