Úrval - 01.02.1948, Síða 50
48
ÚRVAL
Hve djúptæk áhrif þessar að-
gerðir geta haft á fangana má
sjá á bréfi til dr. Pick frá for-
eldrum fyrrverandi afbrota-
manns, sem nú er löghlýðinn
borgari og lifir hamingjusömu
lífi.
„Þessi fáu orð,“ skrifa þau,
„gefa kannski ekki til kynna,
hvernig okkur er innanbrjósts.
Samt vonum við, að þau tjái
yður innilegt þakklæti okkar og
aðdáun á þeirri frábæru skurð-
aðgerð, sem þér hafið gert á syni
okkar.
Þetta er án efa það blessunar-
ríkasta, sem nokkru sinni hefur
fallið honum í skaut, og árang-
urinn hefur fært okkur meiri
og óvæntari gleði, en þér getið
gert yður í hugarlund. Því að
auk þess sem þér hafið bætt út-
lit hans, hafið þér með góðvild
yðar og göfugmennsku vakið
aftur hjá honum trúna á menn-
ina. Hann horfir nú með nýjum
áhuga og bjartari vonum til
framtíðarinnar.
Við færum yður enn einu
sinni þakkir okkar fyrir þessa
óvæntu hamingju.“
•— Magazine Digest.
Matvæli og fólksfjölgun.
Til þess að koma í veg fyrir
styrjaldir þarf barnsfæðingum
að fækka. Takmörkun barn-
eigna er betri aðferð til að
tryggja friðinn en takmörkun
vígbúnaðar.
Fólksfjölgunin í heiminum
er sumstaðar mjög mikil, ann-
arsstaðar gerir hún ekki meira
en halda í horfinu. Sérfræðing-
ar telja, að ef fólksfjölgunar-
kapphlaup hæfist nú, mundi
það hafa eins hörmulegar af-
Ieiðingar og kapphlaup um
k j arnorkuví gbúnað.
Lítum á þessar tölur: Árið
1940 var íbúatala
Bandaríkjanna .. 132 000 000
Sovétríkjanna .... 170 000 000
Kína .......... 400 000 000
Stóra Bretlands 42 000 000.
Af þessum löndum er fjölg-
unin mest í Kína og Sovétríkj-
unum, minni í Bandaríkjunum
og minnst í Englandi. Öðru máli
gegnir um matvælaframleiðsl-
una. Næringarefnafræðingar
telja, að 3000 hitaeiningar sé
hæfilegur dagskamtur á mann.
Meira en helmingur af íbúum
jarðarinnar fær minna en þenn-
an skammt. Tæpur helmingur
fær ekki einu sinni 2250 hita-
einingar. Ibúar Bandaríkjanna
munu fá yfir 3000 ein., íbúar