Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 51
1 STUTTU MÁL.I
49
Sovétríkjanna milli 2800 og
2900 ein., Kínverjar um 2200
og Indverjar ekki nema rúmar
2000 einingar.
Lítum nú á fólksfjölgunina. I
Bandaríkjunum er fæðingartal-
an 17, en dánartalan 11 af
hverjum þúsund. Raunveruleg
fjölgun 6 á hverja þúsund íbúa
á ári. I Sovétríkjunum er fæð-
ingartalan 37, en dánartalan 19.
Raunveruleg fjölgun 18. Frá
Kína eru ekki til áreiðanlegar
tölur, en raunveruleg fjölgun
mun vera eitt hvað minni en í
Sovétríkjunum. Aftur á móti
er fjölgunin í Suður-Ameríku
mjög mikil, verður sennilega
orðin 48 af hundraði 1960.
Við skulum líta fram til árs-
ins 1960. Hve margir munu
setjast að matborðum heimsins
á því ári ? Eftirfarandi tölur ná
skammt, en gefa þó nokkra hug-
mynd: Ef heimurinn er tekinn
sem heild, verður hvert fjögra
manna borð að bæta við sig einu
sæti. En þessi fjölgun munna
fer ekki eftir því, hvar matur-
inn er mestur. I Sovétríkjunum
bætist að minnsta kosti einn við
hvert fjögra manna borð, en í
Bandaríkjunum bætist einn við
hvert sjömanna borð. Fjölgunin
til ársins 1960 mun verða í
Bandaríkjunum .... 21 000 000
Sovétríkjunum .... 29 000 000
Indlandi ....... 45 000 000
Kína .......... 60 000 000.
Og hvar eru svo matvælin
einkum framleidd? Bandaríkja-
menn eru fremstir í flokki. Þeir
framleiða 10 000 hitaeiningar á
hvem íbúa, þrefalt meira en.
þeir neyta sjálfir, hitt flytja
þeir út. Sovétríkin framleiða
4600 einingar. Lönd Asíu 2700
til 2900 einingar. Suður-Ame-
ríkulöndin rúmar 7000 hitaein-
ingar á hvem íbúa.
Augljóst er, að eina lausnin
á matvælaskortinum er aukin
ræktun. I Bandaríkjunum em
ræktaðar fjórar ekrur lands á
hvem íbúa, í Sovétríkjunum
tvær ekrur, ein og hálf ekra í
Suður-Ameríku og tæp ekra í
Vestur-Evrópu og Asíu. Mat-
væli má flytja og eru flutt milli
landa. En slíkir flutningar era
erfiðleikum bundnir og mat-
væli hafa takmarkað geymslu-
þol. Bezt er, að þau séu ræktuð
að mestu þar, sem þeirra er
neytt. Og það er hægt að bæta
um í því efni. Matvælafram-
leiðslan á hvem einstakling er
tífalt meiri í bezt ræktuðu lönd-
unum en í þeim, sem fátækust