Úrval - 01.02.1948, Side 52
50
ÚRVAL
eru, að áliti Matvælastofnunar
Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Það sem á skortir er aukin
menning, aukin vélanotkun,
meiri áburður, hefting örfoks
og eyðingar og útrýming jurta
og dýrasjúkdóma.
Marjorie van de Water i „Science
News Letter".
Gagnsæ plastmálning.
Lockrey Plastic Products Co.
heitir efnaverksmiðja í Flushing
í New Yorkfylki í Bandaríkjun-
um, sem nýlega hefur sent frá
sér á markaðinn nýja málningu,
er hefur öll einkenni plastefnis.
Þessa málningu, sem hlotið hef-
ur nafnið „Phenoplast", er hægt
að bera á með pensli, eða úða
henni á, eins og annarri máln-
ingu, og hún þornar á nokkr-
um klukkustundum og myndar
gljáandi, gagnsæja húð, sem er
vatnsheld, eldtraust og þolir
hvers konar kemisk efni.
Hingað til hefur ekki verið
hægt að búa til þannig húð nema
í pressumótum eða í ofnum við
mikinn hita. En með þessu nýja
efni er hægt að húða gólf og
húsgögn, þannig að aldrei þurfi
að bóna þau eða hreinsa (nema
striúka af þeim með votum
klút).
Fyrir bátaeigendur er þetta
efni mjög hagkvæmt. Þeir geta
borið það á botn, byrðing, þilfar
og yfirbyggingu bátsins. Það
gefur fallegan gljáa, flagnar
ekki, þolir seltu, og hrúðurkarl-
ar og annar botngróður hrín
ekki á því.
— Chemical and Engineering News.
co -A- oo
1 skólanum.
XJnga kennslukonan hafði nýlokið við að segja litlum dreng
söguna af lambinu, sem varð viðskila við fjárhópinn, og úlfur-
inn át.
„Þama sérðu,“ sagði hún. „Ef lambið hefði verið hlýðið og
ekki farið frá hópnum, hefði það ekki orðið úlfinmn að bráð.“
„Nei,“ sagði snáðinn hugsandi. „I>á hefðum við borðað það.“
— yVatchman-Examiner.